Þögnin sem umlykur loftslagsmálin Ingrid Kuhlman skrifar 7. febrúar 2026 08:01 Fyrir síðustu Alþingiskosningar árið 2024 var áberandi hversu lítið var rætt um loftslagsmál í umræðuþáttum í útvarpi og sjónvarpi. Þrátt fyrir að loftslagsvandinn sé meðal stærstu áskorana samtímans voru spurningar um loftslag, ábyrgð og aðgerðir að mestu leyti fjarverandi. Þegar málefni fær ekki raunverulegt rými í aðdraganda kosninga verður oft erfitt að gera kröfur eftir á. Ástæður þagnarinnar eru margslungnar Hluti skýringarinnar liggur í eðli loftslagsvandans sjálfs. Hann er víðfeðmur, flókinn og óþægilega nálægur. Hann snertir ekki aðeins framtíðina heldur líka nútímann; ekki aðeins stjórnvöld heldur daglegt líf fólks. Slík viðfangsefni geta átt það til að lama umræðuna frekar en að efla hana. Loftslagsmálin kalla fram tilfinningar sem oft virðist erfitt að veita rými í opinberri umræðu: ótta, sorg, sekt og vanmátt. Í stað þess að vinna með þessar tilfinningar höfum við lært að forðast þær. Þennan skort á umræðu má þannig skilja sem varnarviðbragð eða leið til að vernda okkur gegn því sem virðist of stórt til að takast á við. Þegar þögnin verður pólitísk Í stjórnmálum bætist við önnur vídd. Loftslagsmálin krefjast langtímahugsunar í kerfi sem oft umbunar skammtíma verkefni. Þau krefjast breytinga sem eru óþægilegar að ræða í kosningabaráttu þar sem áherslan er oft á það sem selst vel og skilar atkvæðum, ekki endilega það sem skiptir mestu máli. Þegar loftslagsmálin hverfa úr kosningaumræðu verður afleiðingin ekki aðeins sú að ólík sjónarhorn og aðgerðir heyrast ekki heldur að kjósendur fá takmarkað svigrúm til að mynda sér upplýsta afstöðu. Þögnin verður þannig hluti af lýðræðislegu vandamáli þar sem kjósendur fá ekki raunverulegt tækifæri til að taka afstöðu til máls sem hefur víðtæk áhrif. Það sem er ekki rætt verður erfitt að krefjast, og það sem ekki er krafist verður auðveldlega sett til hliðar. Á endanum getur þetta myndað vítahring þar sem skortur á umræðu réttlætir skort á aðgerðum. Þögn sem kurteisi Þögnin speglar líka samfélagslegt norm um kurteisi og samhljóm. Við viljum ekki raska friðinum. Við viljum ekki vera manneskjan sem „dregur allt niður“. Í slíkri menningu verður auðveldara að tala um loftslagmál sem tæknilegt viðfangsefni eða fjarlæga framtíð, en mun erfiðara að ræða þau sem mannlegt mál sem snertir gildi, lífshætti og tengsl. Þögnin er því sjaldnast einföld afneitun. Hún er samsett úr ótta, varnarviðbrögðum, pólitískum hvötum og menningarlegum venjum. Að skilja þögnina er fyrsta skrefið í að rjúfa hana, ekki með ásökunum, heldur með auknum skilningi á því hvers vegna hún varð til. Að rjúfa þögnina um loftslagsmál Að rjúfa þögnina krefst að einhverju leyti breytinga á því hvernig við tölum og hvort við þorum að tjá okkur yfirleitt. Í stað þess að nálgast loftslagsmálin sem próf á rétt líferni mætti nálgast þau sem sameiginlegt viðfangsefni sem enginn hefur fullkomna stjórn á. Samtöl sem byrja á spurningum fremur en kröfum skapa minni varnir og meira rými fyrir þátttöku. Ábyrgð verður sjaldnast til með sektarkennd eða fyrirmælum. Hún verður oft til þegar fólk upplifir að loftslagsmálin snúist ekki aðeins um tölur og stefnumótun heldur um tengsl við aðra – börn, samfélagið og framtíðina. Slík tengsl myndast sjaldnast í umræðuþáttum eða kosningabaráttu einni saman. Þau myndast í daglegum samtölum við eldhúsborðið, í vinahópum og á vinnustað. Í slíkum samtölum er ekki verið að leita samhljóms eða einnar réttrar niðurstöðu. Þvert á móti getur það verið styrkur að vera ósammála, svo lengi sem samtalið byggir á gagnkvæmri viðurkenningu á því að við stöndum frammi fyrir sameiginlegum veruleika. Að tala um loftslagsmálin snýst ekki um að breyta öðrum heldur um að vera ekki lengur einn með hugsanir sem annars festast í þögninni. Þögnin rofnar sjaldnast með afgerandi yfirlýsingum. Hún rofnar þegar einhver leyfir sér að vera óviss upphátt og gefur þannig öðrum leyfi til hins sama. Lokaorð Þögnin í kringum loftslagsmálin er skiljanleg. Hún verndar okkur gegn ótta, sorg og vanmátt. En hún getur líka fjarlægt okkur hvert frá öðru. Kannski felst fyrsta skrefið einfaldlega í því að tala um það sem við erum að upplifa. Ekki til að sannfæra, ekki til að leysa vandann, heldur til að vera ekki lengur ein með það sem við berum. Þannig getum við fundið sameiginlega flöt, ekki endilega til að hafa svörin heldur til að byrja að tala saman. Höfundur er þátttakandi í loftslagshópnum París 1,5 sem berst fyrir því að Ísland leggi sitt af mörkum til að takast á við loftslagsvandann. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ingrid Kuhlman Mest lesið Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson skrifar Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir skrifar Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir skrifar