Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar 14. október 2026 07:00 „Ávinningur af olíuleit gæti verið ævintýralegur.“ Þannig hefur Viðskiptaráð kynnt Drekasvæðið fyrir Alþingi. Þar er því haldið fram að skatttekjur af olíunni gætu numið 51 til 102 milljónum króna á hvern Íslending. Málið hefur verið gert að stórpólitísku kappsmáli. Það hljómar auðvitað vel. Hver vill ekki sjá slík verðmæti verða að veruleika? En hvaðan koma þessar tölur? Þær byggja á því að á svæðinu leynist 6 til 12 milljarðar olíutunna. Lægri talan er sú sama og olíuleitarfélagið Eykon kynnti árið 2013, áður en rannsóknir olíufélaganna hófust. Þær rannsóknir segja allt aðra sögu. Ég þekki væntingarnar fyrir austan Sem þingmaður Norðausturkjördæmis og fyrrum bæjarfulltrúi í Fjarðabyggð þekki ég vel umræðuna um Drekasvæðið. Margir fyrir austan hafa lengi horft til olíunnar sem tækifæris til atvinnuuppbyggingar. Ég skil það vel, en það er munur á raunverulegu tækifæri og von um eitthvað sem er líklega ekki til staðar. Í mars 2025 tók ég málið upp á Alþingi eftir að meirihluti bæjarráðs Fjarðabyggðar kallaði eftir nýju mati á olíuleit. Ég minnti á að norsk og kínversk olíufélög skiluðu inn leyfum sínum árið 2018. Þau töldu of litlar líkur á arðbærri olíu til að réttlæta frekari leit. Ég vissi ekki til þess að það hefði breyst. Nú vitum við að svo er ekki. Hvað segja gögnin? Umhverfis- og orkustofnun hefur farið yfir allar rannsóknir á svæðinu, gögn olíufélaganna og sjálfstætt mat ÍSOR. Niðurstaðan er skýr. Hverfandi líkur eru taldar á að þar finnist olía eða gas í vinnanlegu magni. Stofnunin telur ekki forsendur til að auglýsa ný leyfi. Ástæðan er jarðfræðin. Yfir eldri jarðlögunum liggja allt að þriggja kílómetra þykk hraunlög. Eldvirkni og jarðhræringar hafa ítrekað hitað og brotið upp berglögin, svo olía sem kann að hafa myndast hefur líklega fyrir löngu átt leið út. Félögin sjálf voru ekki bjartsýnni. Ithaca mat líkurnar á sínu svæði um 1%. Í olíuiðnaði þykja 10% almennt lágmark til að ráðast í borun. Petoro, olíufélag norska ríkisins, sagði í vor að engar líkur hefðu verið á að finna olíu í vinnanlegu magni. Er þá útilokað að þarna sé olía? Nei. Engin hola hefur verið boruð. En til að fá úr því skorið þyrfti þriggja til sex kílómetra djúpa rannsóknarholu sem kostar vel yfir 100 milljónir dollara. Ekkert olíufélaganna taldi það forsvaranlegt. Gilda aðrar reglur um Drekasvæðið? Á Alþingi kallar stjórnarandstaðan iðulega eftir gögnum, greiningum og skýrslum. Aldrei virðist nóg greint. En þegar kemur að Drekasvæðinu virðast allt í einu aðrar reglur gilda. Reyndar á það ekki bara við í þingsal. Umhverfis- og orkustofnun birti greinargerð sína 6. október. Þremur dögum síðar sendi Viðskiptaráð Alþingi nýja umsögn um olíuleit. Tölurnar voru þær sömu og fyrir ári, 51 til 102 milljónir á mann, byggðar á mati frá 2013. Ný gögn, gamlar tölur. Í Evrópuumræðu sumarsins heyrðist meira að segja sú röksemd að við ættum ekki að fara að deila olíugróðanum, sem væri handan við hornið, með ríkjum á meginlandi Evrópu. Kannski hefði bara verið ágætt að bíða aðeins eftir niðurstöðunum áður en farið var að ráðstafa gróðanum. Það er ekki hægt að kalla eftir gögnum þegar þau henta málflutningnum en horfa svo fram hjá þeim þegar þau segja aðra sögu. Orkuöryggi fæst ekki með óskhyggju Það er gott og gilt markmið að hætta að flytja inn olíu með tilheyrandi gjaldeyriskostnaði. En það er miklu nærtækara að skipta olíunni út fyrir innlenda, sjálfbæra orku en að bíða eftir olíu sem hverfandi líkur eru á að finnist. Það ætlum við að gera. Ríkisstjórnin hefur nú þegar komið orkumálunum á alvöru hreyfingu eftir langt stöðnunartímabil og gripið til afgerandi aðgerða til þess að bæta orkunýtni og styðja við orkuskipti um allt land. Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur auk þess blásið til átaks í leit og nýtingu jarðhita og uppsetningu varmadælna á köldum svæðum. Það getur lækkað húshitunarkostnað víða um land, líka fyrir austan. Austurland á betra skilið en loforð um olíu sem er allsendis óvíst hvort sé til. Vöndum til verka Svo það sé sagt skýrt þá er enginn að banna olíuleit. Lögin standa óbreytt og ríkisstjórnin hyggst ekki breyta því. Gögnin verða gerð aðgengileg og hver sem telur sig geta komist að annarri niðurstöðu getur rýnt í þau. Hafi einhver trú á verkefninu og fjárhagslega burði til að fylgja því eftir er leiðin opin. Sú leið liggur hins vegar í gegnum formlega umsókn til stjórnvalda, ekki í gegnum viðtöl og fjölmiðla. Eins og forsætisráðherra orðaði það á Alþingi í gær þá þarf einfaldlega að bera sig eftir björginni. En metnaður býr ekki til olíulindir og stór orð breyta ekki niðurstöðum rannsókna. Við eigum að skoða tækifærin en við eigum líka að fara rétt að. Því ekki er allt gull sem glóir. Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eydís Ásbjörnsdóttir Olíuleit á Drekasvæði Mest lesið Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Af hverju ekki hún? Thelma Kristín Kvaran skrifar Skoðun Norrænt sambandsríki – næsta skref! Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Hvers vegna eru niðurstöður PISA leyndarmál? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Ekki er allt gull sem glóir Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Verðmætin verða ekki til af sjálfu sér Hafdís Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um tillögurnar? Ragnhildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Spyrjið okkur hvað við sjáum á TikTok Lena Amirsdóttir Mulamuhic skrifar Skoðun Erum við að borða það sem við höldum að við séum að borða? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Lyf eru fjárfesting í fólki og framtíðinni Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg niðurstaða fyrir launafólk Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Laxeldi á Seyðisfirði Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Til foreldra trans barna og ungmenna María Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Vextir og vöxtur nýsköpunar Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Allir vinna – fjárfestum í því sem við eigum Birna Ósk Einarsdóttir skrifar Skoðun Þrjú höfuð eru betri en eitt Sæþór Randalsson skrifar Skoðun Náttúruverndargjald: Rétt hugmynd, of þröng útfærsla Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun 60 milljarðarnir sem enginn talar um Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Skólamál verða ekki byggð á hentistefnu Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Rétt mönnun í hjúkrun er fjárfesting í öryggi og gæðum Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Bær í vexti - nýtt aðalskipulag Hafnarfjarðar Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Áhrifavaldar já, Gestgjafinn nei Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir skrifar Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hvað kostar venjulegt líf? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Persónulegt níð skilar engum árangri Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvað fáum við fyrir reikninginn? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar Skoðun Hvað fær Ísland fyrir fiskeldi? Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar Sjá meira
„
Skoðun Valkvætt samhengi Ásdísar svo hún geti teiknað upp réttu fyrirsögnina Eydís Inga Valsdóttir skrifar
Skoðun Sá sem vinnur gervigreindarstríðið vinnur heiminn. En hver ræður þá heiminum? Sigvaldi Einarsson skrifar
Skoðun Forvarnir gerast ekki af sjálfu sér Arna Hrönn Aradóttir,Sigríður Arndís Jóhannsdóttir skrifar
Skoðun Samstaða um Suðurnesin sem drifkraft vaxtar Berglind Kristinsdóttir,Pálmi Freyr Randversson,Guðjón Skúlason skrifar
Skoðun Byggingalóðir – tækifæri fyrir ungt fólk í húsnæðisleit eða hilluskraut fjármagnseigenda? Jón Pálsson skrifar