„Vitum hvernig Stjarnan spilar“ Kári Mímisson skrifar 3. febrúar 2026 22:47 Jakob Örn Sigurðarson er kominn með KR í úrslitaleik VÍS-bikarsins. vísir/Anton Það var létt yfir Jakobi Sigurðssyni, þjálfara KR, þegar hann mætti í viðtal strax eftir sigur liðsins gegn Tindastól í undanúrslitum Vís bikarkeppni karla nú í kvöld. Leikurinn var æsispennandi en úrslitin réðust á lokamínútu leiksins. „
Þetta var rosalegur leikur. Mér fannst við vera með undirtökin í fyrri hálfleik og til að byrja með í þeim seinni. Tindastóll er auðvitað rosalega gott lið og tókst að keyra upp ákefðina, sérstaklega varnarlega. Sóknarleikur okkar var því orðinn svolítið stirður hér undir lokin. Ég er virkilega sáttur með að okkur tókst að finna lausnir hér undir lokin og vinna þennan leik.“ KR leiddi nánast allan leikinn en þegar um þrjár mínútur voru eftir af leiknum komst Tindastóll yfir í fyrsta sinn í leiknum. Lokamínúturnar voru svakalegar þar sem KR tókst að tryggja sér sigurinn. Jakob segir að liðið hafi verið undirbúið undir að leikurinn myndi spilast eins og hann gerði og segist vera sáttur með hvernig liðið steig upp undir lokin. „Við töluðum um það fyrir leikinn að í svona stórum leikjum gegn góðum liðum getur allt gerst. Þetta fer svolítið fram og til baka sem við vissum að myndi gerast. Við ræddum það að þegar það myndi gerast ætluðum við að halda okkar fókus og spila áfram sem eitt lið. Mér fannst okkur takast að gera það og ég er gríðarlega sáttur að við fórum ekki of mikið út úr okkar leik hér undir lokin.“ Stjarnan verið besta lið landsins Eftir leiki kvöldsins er það ljóst að KR mætir Stjörnunni í úrslitum en Stjarnan vann Keflavík fyrr í kvöld eftir framlengdan leik. Þessi lið léku til úrslita í bikarnum árið 2009 og 2013 þar sem Stjarnan sigraði í bæði skiptin eftir spennandi viðureign en Jakob var sjálfur í liði KR árið 2009. „Þessi leikur leggst rosalega vel í mig. Þetta verður gríðarlega erfitt verkefni en lið Stjörnunnar er búið að vera frábært frá áramótum og verið besta liðið landsins. Þetta verður gott verkefni fyrir okkur. Nú ætlum við að ná endurheimt og verða klárir fyrir leikinn á laugardaginn. Við vitum hvernig Stjarnan spilar, þeir eru mjög ákafir og eru á fullu allan tímann, þannig að við þurfum að vera klárir í það.“ Allir að koma með eitthvað að borðinu KR hefur leikið afar vel það sem af er ári. Liðið er nú búið að vinna sex leiki í röð og hafa aðeins tapað einum leik frá áramótum en það var einmitt gegn Stjörnunni. Jakob segist vera afar ánægður með liðið en á sama tíma heldur hann sér og sínum mönnum á jörðinni og segir að liðið eigi meira inni. „Ég er mjög ánægður með liðið og leikmennina. Þeir eru allir að koma með eitthvað mismunandi að borðinu. Mér finnst þeir vera að passa mjög vel saman þessa stundina og eru farnir að skilja hvorn annan betur og betur sem gerir það að verkum að þeir eru farnir að spila betur saman. Mér finnst við vera á uppleið en á sama tíma þá þurfum við að halda áfram þar sem við erum ekki alveg á þeim stað sem við viljum vera á og mér þykir við eiga meira inni.“
VÍS-bikarinn KR Mest lesið Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Sjá meira