„Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 29. janúar 2026 21:01 Einar Þorsteinsson mun áfram leiða lista Framsóknar í borginni í komandi sveitarstjórnarkosningum. Vísir/Vilhelm Oddviti Framsóknar í Reykjavíkurborg segir fyrirhugað deiliskipulag Borgarlínunnar um Suðurlandsbraut augljóslega ekki ganga upp. Frekar eigi að byggja mislæg gatnamót og gera forgangsaakreinar fyrir strætó.
Í dag var birt tillaga að deiliskipulagi Borgarlínunnar um Suðurlandsbraut. Á myndum sem borgin birti með má sjá að akreinum fyrir einkabíla verður fækkað í hvora átt. Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknar í borginni, segir að umferðin líkt og hún er í dag gangi ágætlega þrátt fyrir umferðarteppur. „Ég sé ekki fyrir mér að þessi tillaga muni valda neinu öðru en algjöru öngþveiti hér á Suðurlandsbrautinni og þetta er náttúrulega lykilsamgönguæð inni í borgarkerfinu. Við kjörnir fulltrúar höfum ekki fengið að sjá neinar greiningar á því hvernig umferðin mun færast annað, inn í hverfin eða sitja föst einhvers staðar annars staðar. Af því að þau gögn eru öll til. Það eru gerðar svona hermanir á því hvert umferðin fer og við höfum ekki fengið að sjá það,“ segir Einar sem ræddi málin í Reykjavík síðdegis í dag. Hann tekur einnig fram að bílastæðunum fækki við götuna. „Við sjáum það líka að það á að taka slatta af bílastæðunum hérna sem þjóna verslun og þjónustu á þessari mikilvægu götu þar sem eru fjölmörg fyrirtæki og fjölmennir vinnustaðir. Gott og vel, borgin á það land, en ég myndi nú halda að það væri hægt að byrja strax samtalið við þessa eigendur þessara húsa og rekstraraðila hér um það hvernig hægt sé að bæta þeim upp þessi bílastæði.“ Fara eigi í samráð við rekstraraðila við götuna núna en Einar telur að það sé oft seint að fara í slíkt eftir að deiliskipulagið hefur verið birt. Hann hefði viljað fara mun fyrr í samráðsferli með rekstraraðilunum. Fylgjandi strætó „Ég er fylgjandi því að við byggjum hérna upp öflugt almenningssamgöngukerfi þar sem strætó er á forgangsakreinum og það heitir Borgarlína, gott og vel. Það er bara eitt af púslunum í því að draga úr umferðartöfum á öllu höfuðborgarsvæðinu,“ segir Einar. Hann sé hins vegar ekki hlynntur Borgarlínunni í útfærslu líkt og stefnt er á að Suðurlandsbrautin verði. Deiliskipulagið sé sniðmátið fyrir Borgarlínuna sem muni líka ganga um Kársnesið, upp á Höfða og inn í Hafnarfjörð. „Ég hef trú á því að eina leiðin til að bæta umferðinni á höfuðborgarsvæðinu miðað við þann vöxt í fjölda íbúa og vöxt í fjölda bifreðia sem færast hérna inn á höfuðborgarsvæðið, og í hverjum mánuði, að þá verðum við að byggja mislæg gatnamót, byggja göng eða grafa göng fyrir umferðina, gera forgangsakreinar fyrir strætó og hjólastíga og göngustíga. Þetta er samgöngusáttmálinn.“ Hefur ekkert á móti grasi Einar segir þó ekki allt slæmt heldur verði til að mynda öruggara fyrir gangandi vegfarendur að fara yfir götuna og búinn verður til hjólastígur sem hann telur að margir muni nýta sér. „Það eru mikil gæði í framkvæmdum þar sem umferðaröryggi er aukið og allt það. En það er hægt að útfæra þetta með betri hætti og ég sé það á þessum myndum að það eru fjölmargir metrar sem fara bara undir gras. Gott og vel, ég er ekkert á móti grasi en við erum reyndar með Laugardalinn hérna við hliðina á okkur.“
Reykjavík Borgarlína Skipulag Borgarstjórn Framsóknarflokkurinn Reykjavík síðdegis Mest lesið Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Innlent Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Innlent Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Innlent Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Innlent Fleiri fréttir Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Sjá meira