Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 29. janúar 2026 12:44 Sesselía Birgisdóttir tekur við nýju sviði. Hagar hafa ráðið Sesselíu Birgisdóttur til að leiða nýtt svið innan samstæðunnar, viðskiptavild, upplifun og miðlun. Í tilkynningu segir að með stofnun sviðsins sé stigið mikilvægt skref í áframhaldandi þróun Haga með aukinni áherslu á upplifun viðskiptavina, nýjar tekjuleiðir og markvissa miðlun.
Í tilkynningunni segir einnig að undir hið nýstofnaða svið falli annars vegar vildarkerfið Takk og hins vegar rekstrareiningin Hagar Miðlar. Takk sé nýtt vildarkerfi verslana Haga sem bjóði viðskiptavinum meðal annars upp á betri kjör, áhugaverð fríðindi og nýja þjónustu. Hagar Miðlar hafi það hlutverk að nýta fjölbreytta innviði samstæðunnar til að miðla auglýsingum, upplýsingum og fjölbreyttu efni frá þriðja aðila, bæði í verslunum og á stafrænum miðlum. Fram kemur að Sesselía hafi víðtæka reynslu, hérlendis og erlendis, af rekstri og uppbyggingu nýrra tekjueininga innan fyrirtækja, auk þess að hafa leitt þjónustu-, sölu- og markaðsmál hjá fjölda íslenskra fyrirtækja. Hún starfaði hjá Högum á árunum 2021–2023 sem forstöðumaður nýsköpunar- og markaðsmála, þar sem hún leiddi ýmis umbreytingarverkefni fyrir Haga og verslanir félagsins. Síðast starfaði Sesselía sem framkvæmdastjóri Vodafone fjarskipta hjá Sýn. „Það er virkilega ánægjulegt að koma aftur til starfa hjá Högum og taka þátt í spennandi vaxtarvegferð félagsins til næstu ára. Það eru afar spennandi verkefni framundan sem hafa það að markmiði að mæta síbreytilegum þörfum viðskiptavina og bæta upplifun með nýtingu á tækni, eitthvað sem ég hef alltaf brunnið fyrir. Á sama tíma er frábært að taka þátt í að byggja upp nýja tekjustrauma í gegnum Haga Miðla,“ segir Sesselía Birgisdóttir. „Með stofnun sviðs viðskiptavildar, upplifunar og miðlunar erum við að stíga spennandi skref fyrir Haga, annarsvegar tengt því að efla enn frekar þjónustu við viðskiptavini og hins vegar til þess að byggja nýja tekjustrauma. Sesselía þekkir starfsemi Haga vel, hefur mikla reynslu af uppbyggingu nýs rekstrar og ástríðu fyrir því að byggja upp framúrskarandi þjónustustarfsemi. Ég veit að reynsla Sesselíu mun nýtast mjög vel í þeim verkefnum sem eru framundan hjá okkur og það er virkilega ánægjulegt að fá hana aftur í Haga teymið,“ segir Finnur Oddsson, forstjóri Haga.
Vistaskipti Hagar Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira