Désirée prinsessa látin Magnús Jochum Pálsson skrifar 21. janúar 2026 12:25 Desiree prinsessa dansar við eiginmann sinn, baróninn Niclas Silfverschiold, á brúðkaupsdaginn 6, júní 1964 í Stokkhólmi. Getty Prinsessan Désirée Elisabeth Sibylla, Silfverschiöld-barónessa og eldri systir Karls Gústafs XVI Svíakonungs, lést miðvikudaginn 21. janúar 2026, 87 ára að aldri.
Désirée fæddist 2. júní 1938 í Haga-kastala, þriðja dóttir krónprinsins Gústafs Adolfs og prinsessunnar Sibyllu. Hún ólst þar upp ásamt fjórum systkinum sínum, Margréti prinsessu, Birgittu prinsessu, Kristínu prinsessu og krónprinsinum Karli Gústafi. Hún var ein af fjórum Haga-systrum eins og þær voru kallaðar. Désirée æfði ballet og spilaði á píanó sem ung stúlka en renndi sér einnig á skíðum. Hún menntaði sig í leikskólakennslu og útskrifaðist sem slíkur kennari árið 1960. Eftir útskrift starfaði hún við Kungsklippan-leikskólann, barnaspítala og Tomteboda-skólann fyrir blinda. Désirée túlofaðist baróninum Niclas Silfverschiöld 19. desember 1963 og þá var tilkynnt að hún myndi bera titilinn Désirée prinsessa, Silfverschiöld-barónessa. Desirée og Niclas giftu sig í Storkyrkan í Stokkhólmi 5. júní 1964 og horfðu meira en fjórir milljónir manna á brúðkaupið. Systurnar og prinsessurnar Christina, Birgitta og Desiree ásamt Tord Magnusson, eiginmanni þeirrar fyrstnefndu árið 2017.Getty Eftir brúðkaupið fluttu hjónin í Koberg-kastala Silfverschiöld-fjölskyldunnar í Vestur-Gautlandi. Þau eignuðust börnin Carl (1965), Kristínu (1966) og Hélène (1968). Désirée varð ekkja árið 2017 þegar barónninn Niclas Silfverschiöld lést en hún lifði áfram í Koberg-kastala til æviloka. Prinsessan skilur eftir sig börn sín þrjú. „Það er með mikilli sorg í hjarta sem ég hef fengið upplýsingar um að systir mín, Désirée prinsessa, er látin. Margar góðar minningar voru skapaðar á heimili Silfverschiöld-fjölskyldunna í Vestur-Gautlandi, stað í Svíþjóð sem varð systur minni kærkominn. Fjölskylda mín og ég sendu samúðarkveðjur til barna Désiréar prinsessu og fjölskyldna þeirra,“ sagði Karl Gústaf Svíakonungur um andlát systur sinnar.
Svíþjóð Kóngafólk Andlát Tengdar fréttir Birgitta prinsessa er látin Birgitta prinsessa af Svíþjóð er látin, 87 ára að aldri. Hún var eldri systir Karls Svíakonungs og lést á Mallorca þar sem hún hefur dvalið undanfarin ár. 4. desember 2024 15:27 Mest lesið Glímdi við kaupfíkn og fór í gjaldþrot: „Það kemur alltaf að skuldadögum“ Lífið Mínútuþögn á minningarleik um Patrek Frey Lífið Varð milljón krónum ríkari í mátunarklefa á Tenerife Lífið Gullin regla að sýna ekki allt hold í einu Tíska og hönnun Sjóðandi hiti hjá stjörnum rappsins Tónlist „Þetta er erfiðasta mýta sem næringarfræðin hefur þurft að díla við lengi“ Lífið Krakkaskaup fyrir fullorðna Gagnrýni Búið á tólf stöðum í tólf ára sambandi Lífið Er óeðlilegt að gift fólk frói sér? Lífið Yfirlýst lesbía Lífið Fleiri fréttir Mínútuþögn á minningarleik um Patrek Frey Varð milljón krónum ríkari í mátunarklefa á Tenerife Yfirlýst lesbía Búið á tólf stöðum í tólf ára sambandi Fjörugt Food and fun framundan „Þetta er erfiðasta mýta sem næringarfræðin hefur þurft að díla við lengi“ Glímdi við kaupfíkn og fór í gjaldþrot: „Það kemur alltaf að skuldadögum“ Eyddi öllu út beint eftir Ofurskálina Brynja Dan og Jóhann selja slotið eftir breytingar Listapör, dansfjölskylda og rjómi senunnar á Garðinum Fram, fram, framakonur Maturinn í Ofurskálinni: Vængirnir étnir í tonnatali Glæsilegustu bollur landsins ruku út Svona var hálfleiksatriði Bad Bunny: „Guð blessi Ameríku“ Úr Eurovision í jógað: „Var ekki nógu góð við sjálfa mig eftir þetta“ Quang Le „virkilega indæll og mjög næs náungi“ Stjörnulífið: „Já, ég er klámfíkill“ Er óeðlilegt að gift fólk frói sér? Prinsinum hafi verið hent út á miðnætti Hamilton ætlar ekki að bruna Tímabilið sem flestir vilja gleyma Festist í lyftu í New York Að vera neitað um listamannalaun reyndist algjör frelsun Krakkatía vikunnar: Fáni, Esbjerg og Ormstunga Þúsund hlauparar í stuði í Norðurljósahlaupi ON Söngvari 3 Doors Down látinn „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Alma stolt af syninum Hitnar í kolunum hjá Heated Rivalry-stjörnum? Mótorhjól eru bönnuð í Grænlandi Sjá meira
Birgitta prinsessa er látin Birgitta prinsessa af Svíþjóð er látin, 87 ára að aldri. Hún var eldri systir Karls Svíakonungs og lést á Mallorca þar sem hún hefur dvalið undanfarin ár. 4. desember 2024 15:27