Blysröð í anda þjóðhátíðar í stað brennu Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 29. desember 2025 18:26 Linda býður áhugasömum að taka þátt í blysatendrun á gamlárskvöld, en í stað stóru blysanna í Eyjum kemur hver og einn með áramótablys að heiman. Vísir Amma á Kársnesi sem saknar árlegrar áramótabrennu í Kópavogi hefur ákveðið að blása til svokallaðrar blysraðar í anda þjóðhátíðar í Eyjum á gamlárskvöld. Engar áramótabrennur eru á dagskrá í sveitarfélaginu í ár. Hún furðar sig á áhugaleysi Kópavogsbæjar á framtakinu, sem þjóni þeim tilgangi að fjölskyldur hafi eitthvað að gera milli matmálstíma og áramótaskaups á gamlárskvöld.
Linda Jónsdóttir, íbúi á Kársnesi, stendur fyrir framtakinu. Hún bindur vonir við að uppákoman festi sig í sessi og bendir á að ekkert sé um að vera í Kópavogi á gamlárskvöld. Engin áramótabrenna hefur farið fram í bænum frá kórónuveirufaraldri, en skiptar skoðanir hafa verið á þeirri tilhögun. „Ef þeir ætla að sleppa því að halda brennu finnst mér að það þurfi að vera eitthvað í staðinn,“ segir Linda í samtali við fréttastofu. Vasaljós ef ekki blys Uppákoman snýst um að fólk raði sér meðfram Kársnesströndinni og kveiki í blysum eða á vasaljósum á slaginu hálftíu. Hughrifin yrðu þau sömu og á sunnudagskvöldinu á þjóðhátíð í Eyjum, þaðan sem Linda á ættir að rekja. „Það er alveg hægt að gera alls konar, eins og til dæmis þetta, svo fólk hafi eitthvað skemmtilegt að gera þetta kvöld. Svo vindur þetta kannski upp á sig.“ Linda bendir á að þau blys sem eru til sölu hjá björgunarsveitunum séu vissulega ekki jafn langlíf og þau sem tendruð eru á þjóðhátíð í Eyjum. Hún skorar á skipuleggjendur þjóðhátíðar að senda sér línu um hvar slík blys er að fá, fari svo að eins viðburður fari fram á næsta ári. Að sinni hvetur hún fólk til að styrkja Hjálparsveit skáta í Kópavogi. Kópavogsbær áhugalaus Hún segist hafa sent erindi á Kópavogsbæ þar sem hún lét vita af viðburðinum og bað um aðstoð vegna þess að ruslatunnur vantar á svæðið. „Þeir sýna þessu engan áhuga, og taka ekki þátt í þessu, sem er ægilega leiðinlegt. Þannig að við verðum bara að gera eitthvað skemmtilegt sjálf, og þetta var ákveðin hugmynd. Við eigum náttúrlega frábært friðland, fallega fjöru og mikið útivistarsvæði. Það er gaman að labba þangað með fjölskyldunni og gera eitthvað skemmtilegt,“ segir Linda. Hún hvetur Kópavogsbúa sem sakna brennunnar til að leggja sér lið á slaginu hálftíu á gamlárskvöld. Þá hvetur hún áhugasama ljósmyndara til að mynda viðburðinn, enda gæti orðið mikið sjónarspil á Kársnesströnd á gamlárskvöld.
Áramót Kópavogur Þjóðhátíð í Eyjum Mest lesið Diljá Mist á lausu Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sahara Ray látin Lífið Píparapæja selur pent „penthouse“ Lífið Costanza á klakanum Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Sjá meira