Lífið

Wahlberg segir flug­mennina hafa bjargað lífi sínu

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Donnie Wahlberg með eiginkonu sinni and Jenny McCarthy.
Donnie Wahlberg með eiginkonu sinni and Jenny McCarthy. Frazer Harrison/Getty Images

Bandaríska Hollywood-stjarnan Donnie Wahlberg segir flugmenn einkaflugvélar hafa bjargað lífi hans þar sem ekki fór verr þegar flugvélin rann út af flugvellinum við ætlaða brottför í Las Vegas um helgina.

Fram kemur í umfjöllun bandaríska miðla að átta hafi verið um borð í vélinni, Wahlberg og fylgdarlið hans. Vélin hafi átt að fara í loftið 12:50 að staðartíma en það tókst ekki. Ekki er ljóst hvers vegna ekki, slysið er nú til rannsóknar en vélin lenti á nærliggjandi grindverki. Flugvélin er af gerðinni Dassault Falcon 50 og átti að fara til Toronto.

@alwaysliveatc Falcon Aborts takeoff and goes off runway at LAS #vegas #lasvegas #falcon #airtrafficcontrol #atc ♬ original sound - ATC LIVE

Wahlberg tjáði sig um atvikið á Instagram. Hann segir skilaboðum hafa rignt yfir sig og hann því ákveðið að birta myndband á miðlinum til að láta vita af því að hann sé heill á húfi. Donnie er eins og flestir lesendur eflaust vita bróðir Hollywood-leikarans Mark Wahlberg.

„Já, það var ég og teymið mitt/vinir mínir sem vorum um borð í vélinni. Þetta voru frekar stressandi nokkrar sekúndur (sem virtust eins og nokkrar langar mínútur), skrifar leikarinn meðal annars. „Ég er auðvitað þakklátur Guði og frábæru flugmönnunum okkar sem stóðu sig ótrúlega vel við að halda okkur öruggum og afstýra alvarlegu stórslysi. Flugvélin fékk á sig nokkrar skrámur – en ekki við.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.