Þurrkuðust út af þingi en sitja á tugum milljóna króna Kjartan Kjartansson skrifar 29. desember 2025 09:41 Kosninganóttin árið 2024 var niðurdrepandi fyrir VG. Flokkurinn hlaut aðeins 2,3 prósent atkvæða og datt út af þingi í fyrsta skipti frá stofnun. Vísir/Elín Guðmunds Eigið fé Vinstri grænna nam um fimmtíu milljónum króna við lok síðasta árs þrátt fyrir taprekstur á kosningaári. Flokkurinn varði rúmum 26,6 milljónum króna í kosningabaráttu sem skilaði honum engu.
Vinstri græn guldu afhroð í þingkosningunum í nóvember í fyrra og misstu alla átta þingmenn sína. Svandís Svavarsdóttir tilkynnti nýlega að hún ætlaði ekki að sækjast eftir formennsku í flokknum á næsta landsfundi. Hún tók við formennskunni eftir að Katrín Jakobsdóttir sagði af sér þingmennsku til þess að fara í forsetaframboð í fyrra. Mesti kostnaðurinn við kosningabaráttu flokksins var vegna auglýsingakaupa, tæpar 18,7 milljónir króna samkvæmt ársreikningi sem Ríkisendurskoðun hefur farið yfir. Hvert einasta þeirra innan við fimm þúsund atkvæða sem flokkurinn fékk í kosningunum kostaði hann rúmlega 5.300 krónur. Þrátt fyrir útgjöldin töpuðu Vinstri græn áðeins tæplega 1,2 milljóna króna á rekstrinum í fyrra. Tekjurnar námu tæpum 120 milljónum króna en gjöldin rúmri 121 milljón. Eigð fé flokksins nam tæpum 49,6 milljónum króna við lok árs og haldbært fék rúmum 45,2 milljónum. Mestu styrkirnir úr eigin ranni Meirihluti tekna VG kom frá ríkissjóði, alls 87,3 milljónir króna. Þá fékk þingflokkur VG, sem er ekki lengur til, rúmar 10,5 milljónir króna frá Alþingi. Sjö fyrirtæki styrktu flokkinn um samtals tæpar 1,8 milljónir króna. Hæsti einstaki styrkurinn kom frá Arion banka sem gaf VG 500 þúsund krónur, fimmtíu þúsund krónum undir lögbundnu hámarki slíkra framlaga. Ölgerðin styrkti flokkinn um 400 þúsund krónur og Kaupfélag Skagfirðinga um 300 þúsund. Einstaklingar styktu flokkinn um rúmar 11,2 milljónir í fyrra en meirihluti þess fjár kom frá kjörnum fulltrúum flokksins, frambjóðendum og stofnendum. Þáverandi ráðherrarnir Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir og Guðmundur Ingi Guðbrandsson gáfu hámarksupphæðina, 550 þúsund krónur, og Svandís Svavarsdóttir 540 þúsund. Hjónin Steinunn Þóra Árnadóttir, þáverandi þingmaður flokksins, og Stefán Pálsson, sagnfræðingur, gáfu hámarksupphæðina hvort. Orri Páll Jóhannsson, þáverandi þingmaður flokksins, gaf 545 þúsund krónur.
Vinstri græn Uppgjör og ársreikningar Styrkir til stjórnmálasamtaka Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Fleiri fréttir Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Sjá meira