Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Agnar Már Másson skrifar 20. desember 2025 23:44 Í skúffunni má sjá glitta í ljósmynd af Trump. Oljóst er hvers vegna þetta tiltekna skjal hefur verið fjarlægt. X Hið minnsta sextán skrár hafa verið fjarlægðar af opinni vefsíðu bandaríska dómsmálaráðuneytisins sem höfðu verið opinberaðar í gær í tengslum við barnaníðinginn Jeffrey Epstein. Þar á meðal hefur skjal sem sýndi ljósmynd af Donald Trump Bandaríkjaforseta horfið af vefsíðu ráðuneytisins, en ekki liggur fyrir hvers vegna.
Skjölin sextán voru aðgengileg í gær, að sögn AP, og sýndu meðal annars málverk af nöktum konum. Ein skrá var ljósmynd er sýndi stafla af ljósmyndum á skenk og í skúffum. Þar mátti sjá ljósmynd af Trump ásamt Epstein, Melaniu Trump og Ghislaine Maxwell, sem lengi var samstarfskona Epsteins. Sjá einnig: Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Dómsmálaráðuneytið hefur ekki gefið upp hvers vegna skrárnar voru fjarlægðar eða hvort það hafi verið gert af ásettu ráði. Talsmenn ráðuneytisins hafa ekki tjáð sig. Ekki liggur fyrir hvað annað hefur verið tekið niður og hvers vegna. Demókratar í eftirlitsnefnd fulltrúadeildarinnar vöktu athygli á myndina sem hvarf í færslu á X og skrifuðu: „Hvað annað er verið að hylma yfir? Við krefjumst gagnsæis fyrir almenning í Bandaríkjunum.“ This photo, file 468, from the Epstein files that includes Donald Trump has apparently now been removed from the DOJ release.@AGPamBondi is this true? What else is being covered up? We need transparency for the American public. pic.twitter.com/3wYZAl2dse— Oversight Dems (@OversightDems) December 20, 2025 Skjölin sem birt voru í gær innihalda þúsundir ljósmynda og bæta í raun litlu við þær opinberu upplýsingar sem þegar liggja fyrir um Epstein og mál hans. Skjölin varpa ekki heldur frekara ljósi á tengingar hans við auðuga og áhrifamikla menn vestanhafs eða annarsstaðar í heiminum.
Mál Jeffrey Epstein Bandaríkin Donald Trump Tengdar fréttir Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna birti í gær þúsundir skjala sem tengjast máli Jeffreys Epstein, barnaníðingsins fræga og látna. Tiltölulega fljótt þótti þó ljóst að skjölin sem birt voru stæðust ekki væntingar margra um að varpa frekara ljósi á málið. 20. desember 2025 08:48 Epstein-skjölin birt Epstein-skjölin hafa verið birt á vefsíðu dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna. Birting skjalanna hafa valdið miklum usla vestanhafs en þau tengjast rannsóknum á barnaníðingnum Jeffrey Epstein. 19. desember 2025 23:16 Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Veður Fleiri fréttir Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sjá meira
Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna birti í gær þúsundir skjala sem tengjast máli Jeffreys Epstein, barnaníðingsins fræga og látna. Tiltölulega fljótt þótti þó ljóst að skjölin sem birt voru stæðust ekki væntingar margra um að varpa frekara ljósi á málið. 20. desember 2025 08:48
Epstein-skjölin birt Epstein-skjölin hafa verið birt á vefsíðu dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna. Birting skjalanna hafa valdið miklum usla vestanhafs en þau tengjast rannsóknum á barnaníðingnum Jeffrey Epstein. 19. desember 2025 23:16