Heimilar birtingu gagna úr rannsókn á Maxwell Samúel Karl Ólason skrifar 9. desember 2025 16:27 AP/John Minchillo Bandarískur alríkisdómari heimilaði í dag dómsmálaráðuneytinu að opinbera gögn úr rannsókn ákærudómstóls sem beindust að Ghislaine Maxwell. Ákvörðunin gæti leitt til birtingar mikils magns áður óséðra gagna í Epstein-málinu.
Ákvörðunin fylgir á hæla þess að annar dómari heimilaði ráðuneytinu að opinbera gögn frá rannsókn ákærudómstóls gegn Jeffrey Epstein frá fyrsta áratug aldarinnar. Þá er einn dómari til viðbótar með til skoðunar hvort opinbera eigi gögn úr rannsókninni gegn Epstein frá árinu 2019, samkvæmt AP fréttaveitunni. Ákærudómstólar eru sérstök bandarísk fyrirbæri þar sem saksóknarar fá almenna borgara til að mynda kviðdóm og fara yfir sönnunargögn og vísbendingar sem búið er að afla í tilteknum málum og segja til um hvort tilefni sé til að leggja fram ákærur, í einföldu máli sagt. Mikil leynd hvílir yfir störfum ákærudómstóla og upplýsingar úr slíkum rannsóknum eru sjaldan sem aldrei birtar. Nokkrir aðrir dómarar höfðu áður hafnað því að birta gögnin. Í úrskurði sínum vísaði dómarinn til nýrra laga um að dómsmálaráðuneytinu beri að opinbera gögn sín um mál sem tengjast Epstein og það fyrir 19. desember. Sjá einnig: „Demókratar munu sjá eftir þessu“ Lögin sem um ræðir snúa að skjölum sem dómsmálaráðuneytið hefur aflað í tengslum við rannsóknir í garð Jeffreys Epstein og annarra sem honum tengjast í gegnum árin. Það á við um rannsóknina þegar hann var handtekinn 2019 en gögnin ættu meðal annars að varpa ljósi á samkomulag sem Epstein gerði við saksóknara í Flórída á árum áður og rannsóknirnar sem bæði lögreglan í Flórída og Alríkislögregla Bandaríkjanna (FBI) gerðu þá. Sögð fá væga meðferð í nýjum fangabúðum Epstein svipti sig lífi í fangelsi árið 2019. Hann var 66 ára gamall og hafði þá verið ákærður fyrir mansal og sakaður um að misnota stúlkur kynferðislega og jafnvel útvega áhrifamiklum vinum sínum eins og Andrési prins stúlkur til að misnota. Maxwell er, eins og frægt er, fyrrverandi aðstoðarkona og kærasta Jeffreys Epstein. Hún var dæmd árið 2021 í tuttugu ára fangelsi fyrir að aðstoða Epstein við að brjóta kynferðislega á stúlkum og ungum konum um árabil. Hún sat áður í alríkisfangelsi í Flórída en var flutt í lágmarksöryggisfangabúðir í Texas eftir að hún fundaði með Todd Blanche, aðstoðardómsmálaráðherra, fyrr á árinu. Eftir þann fund birti Blanche afrit af samræðum þeirra þar sem Maxwell sagði að Trump hefði aldrei hegðað sér ósæmilega þegar hann og Epstein voru vinir. Demókratar í dómsmálanefnd fulltrúadeildarinnar hafa haldið því fram að Mawell fái einkar væga meðferð í fangabúðunum í Texas og að starfsfólk þar gangi fram eins og þjónar. Hún fái sérstakar máltíðir sendar til sín og fái þá gesti sem hana langi að hitta, þegar hana langar, á afmörkuðu svæði í fangelsinu. Gestirnir fái meira að segja að taka tölvur með sér. Fara yfir hvaða upplýsingar eigi að afmá Í frétt AP segir að starfsmenn ráðuneytisins eigi í viðræðum við fórnarlömb Epsteins og lögmenn þeirra um hvaða upplýsingar megi afmá eða hylma yfir í gögnunum. Áðurnefnd lög heimila ekki að hylma yfir upplýsingar í gögnunum á þeim grunni að þær gætu valdið ótengdum aðilum skömm eða annars konar vandræðum. Starfsmenn ráðuneytisins mega þó útiloka upplýsingar sem gætu verið notaðar til að bera kennsl á fórnarlömb Epsteins, innihalda persónulegar heilbrigðisupplýsingar eða gætu komið niður á yfirstandandi rannsókn. Lögmaður Maxwell segir að hún hafi ekki lýst yfir andstöðu við birtingu gagnanna að öðru leyti en að benda á það slík birting gæti komið niður á tilraunum hennar til að fá málið gegn sér tekið fyrir dóm á nýjan leik. Ómögulegt væri fyrir hana að fá sanngjörn réttarhöld á nýjan leik eftir birtingu gagnanna.
Mál Jeffrey Epstein Bandaríkin Erlend sakamál Tengdar fréttir Kallar Greene heimskan svikara Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er verulega ósáttur við stjórnendur fréttaskýrendaþáttarins 60 mínútna, fréttakonuna Lesley Stahl og eigendur Paramount. Hann virðist þó sérstaklega ósáttur við Marjorie Taylor Greene, fráfarandi þingkonu Repúblikanaflokksins og fyrrverandi stuðningsmann sinn, og kallar hana heimskan svikara í nýrri færslu á samfélagsmiðlum. 8. desember 2025 16:21 Trump staðfestir Epstein-lögin Donald Trump Bandaríkjaforseti skrifaði í nótt undir frumvarp sem kveður á um að stjórnvöld geri öll skjöl varðandi kynferðisglæpamanninn Jeffrey Epstein opinber og aðgengileg almenningi. 20. nóvember 2025 07:22 Kallar nú sjálfur eftir birtingu Epstein-skjalanna Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur breytt um kúrs og hvatt þingmenn Repúblikanaflokksins til að greiða atkvæði með birtingu allra gagna sem yfirvöld sitja á eftir rannsóknir á athafnamanninum Jeffrey Epstein. 17. nóvember 2025 06:37 „Ég er sá sem getur fellt hann“ Mike Johnson, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, segir að frumvarp sem kveður á um birtingu allra gagna sem yfirvöld hafa safnað um Jeffrey Epstein verði tekið til umræðu í næstu viku. 13. nóvember 2025 11:03 Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Sjá meira
Kallar Greene heimskan svikara Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er verulega ósáttur við stjórnendur fréttaskýrendaþáttarins 60 mínútna, fréttakonuna Lesley Stahl og eigendur Paramount. Hann virðist þó sérstaklega ósáttur við Marjorie Taylor Greene, fráfarandi þingkonu Repúblikanaflokksins og fyrrverandi stuðningsmann sinn, og kallar hana heimskan svikara í nýrri færslu á samfélagsmiðlum. 8. desember 2025 16:21
Trump staðfestir Epstein-lögin Donald Trump Bandaríkjaforseti skrifaði í nótt undir frumvarp sem kveður á um að stjórnvöld geri öll skjöl varðandi kynferðisglæpamanninn Jeffrey Epstein opinber og aðgengileg almenningi. 20. nóvember 2025 07:22
Kallar nú sjálfur eftir birtingu Epstein-skjalanna Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur breytt um kúrs og hvatt þingmenn Repúblikanaflokksins til að greiða atkvæði með birtingu allra gagna sem yfirvöld sitja á eftir rannsóknir á athafnamanninum Jeffrey Epstein. 17. nóvember 2025 06:37
„Ég er sá sem getur fellt hann“ Mike Johnson, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, segir að frumvarp sem kveður á um birtingu allra gagna sem yfirvöld hafa safnað um Jeffrey Epstein verði tekið til umræðu í næstu viku. 13. nóvember 2025 11:03