Góð fjölskyldustund öll föstudagskvöld Boði Logason skrifar 7. nóvember 2025 11:52 Benedikt Valsson er þáttastjórnandi Gott kvölds sem hefur göngu sína á Sýn í næstu viku. Sýn „Ef það er ekki tilefni til að segja, þetta getur ekki klikkað, þá veit ég ekki hvenær það er tilefni til þess. Þetta verður bullandi fjör og mikið stuð,“ segir Benedikt Valsson, einn af þáttastjórnendum skemmtiþáttarins Gott kvöld sem hefur göngu sína á sjónvarpsstöðinni Sýn í næstu viku.
Þættirnir eru í umsjón Fannars Sveinssonar, Benedikts Valssonar og Sverris Þórs Sverrissonar. Í daglegu tali eru þeir einfaldlega kallaðir Fannar, Benni og Sveppi. Um er að ræða skemmtispjall þætti þar sem þeir fá gesti í sal, taka innslög út í bæ og svo eru það strákarnir í Bandmönnum sem halda uppi stuðinu allan þáttinn. Stiklu úr þáttunum má sjá hér fyrir neðan. Á meðal gesta í þáttunum eru leikararnir Hildur Vala Baldursdóttir og Gísli Örn Garðarsson. Sigga Beinteins mætir, Bjarni Ben, Inga Sæland, Jakob Frímann, Helgi Seljan og svo lengi mætti telja. Þættirnir hefja göngu sína eftir slétta viku og verða sýndir í línulegri dagskrá á föstudagskvöldum klukkan 19:00. Á föstudaginn geta áskrifendur Sýnar+ horft á fyrstu tvo þættina á streymisveitunni. Benedikt lofar áhorfendum mikilli skemmtun. „Þetta er búið að vera ótrúlega skemmtilegt og gefandi. Við erum búnir að hitta svo marga og fá alls kyns upplýsingar upp úr fólki. Sigga Beinteins mætir til dæmis til okkar og við fáum hana til að dúka fyrir okkur, enda er hún besti og frægasti dúkari landsins,“ segir hann. „Ég get alveg lofað því að fjölskyldan getur sest í sófann eftir kvöldmat og átt skemmtilega stund saman. Okkar markmið er að fá fólk til að hafa gaman, brosa og eiga góða stund á föstudagskvöldum,“ segir Benedikt. Eins og áður segir verða þættirnir sýndir á Sýn á föstudagskvöldum í vetur. Vísir er í eigu Sýnar.
Sýn Gott kvöld Bíó og sjónvarp Mest lesið Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Lífið Grætur enn að hafa misst af símtalinu Lífið Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Lífið Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Lífið Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Lífið Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Lífið Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Lífið Digger grefur sína eigin gröf Gagnrýni Opinbera haustrómantík á Spáni Lífið Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira Lífið Fleiri fréttir Vala sagði einfaldlega „fokk jú“ Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Grenjaði aftur eins og smábarn þrjátíu árum seinna Jón flutti frumsamið lag um fjörutíu ára sögu Stöðvar 2 og Sýnar Grætur enn að hafa misst af símtalinu Finnst hún loksins geta borið höfuð hátt á ný Fréttatía vikunnar: Stjörnur, svindl og Nóbel Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar Húsið helmingi dýrara tveimur árum síðar Hetjan 1986 veit enn ekki hver sendi honum spóluna Fjörutíu ár frá stofnun Stöðvar 2: „Þetta varð milljónatjón“ Stefndu á 150 milljónir en einbýlið kostaði meira „Ætli við endum ekki í einhvers konar fráhvörfum“ Sætti sig við að geta ekki breytt pabba sínum Opinbera haustrómantík á Spáni Framhald af manninum sem mátti ekki fara út með strákunum Hvað veistu um... Nóbelsverðlaunin? Alaska og Flóni hætt saman Saga Sig og Villi naglbítur eignuðust dóttur Verðlaunin ráðgáta og tilfinningin klikkuð Óþekkti sonurinn leitaði Herbert uppi Er Skúli Mog að selja túristum niðurgreitt kornsíróp? Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Sjá meira