Barnastjarna bráðkvödd Magnús Jochum Pálsson skrifar 30. október 2025 12:31 Floyd Roger Myers Jr. lést eftir að hafa fengið hjartaáfall. Fyrrverandi barnastjarnan Floyd Roger Myers Jr. er látinn, 42 ára að aldri. Myers er þekktastur fyrir að hafa leikið yngri útgáfuna af Will Smith í þáttunum um prinsinn ferska frá Bel-Air.
Dægurmálamiðillinn TMZ greindi frá andláti hans og hefur fregnirnar eftir móður hans, Renee Trice. Myers lést á heimili sínu í Maryland að morgni miðvikudags í kjölfar hjartaáfalls. Að sögn móður hans hafði hann fengið þrjú hjartaáföll á síðustu þremur árum. Hún hefði síðast rætt við son sinn kvöldið áður en hann lést. Floyd var fjögurra barna faðir. Systir Myers, Tyree Trice, greindi einnig frá andlátinu á GoFundMe-síðu þar sem er verið að safna pening fyrir jarðarför hans. Hún sagði hjartaáfallið hafa verið „óvænt“ og „skyndilegt“. „Hann var hugulsamur faðir, ástríkur bróðir og vinur sem bjó yfir gæsku, hlátri og hlýju sem snerti við öllum sem hún hitti,“ skrifaði Tyree um eldri bróður sinn. Floyd hóf leiklistarferill sinn aðeins níu ára gamall þegar hann lék yngri útgáfuna af Will Smith í einum þætti af grínseríunni The Fresh Prince of Bel-Air. Sama ár lék hann ungan Marlon Jackson í framhaldsþáttaröðinni The Jacksons: An American Dream. Floyd í hlutverki ungs Will Smith Hann lék síðan smáhlutverk í einum þætti af dramaseríunni Young Americans sem voru sýndir um aldamótin. Eftir það sagði hann skilið við leiklistina og hafði síðustu 25 ár átt loftstokkahreinsunarfyrirtækið Dr. Duct og stofnað samtökin Fellaship sem áttu að hlúa að andlegri líðan karlmanna. Floyd lætur eftir sig börnin Taelyn, Kinsley, Tyler og Knox.
Andlát Bandaríkin Hollywood Bíó og sjónvarp Mest lesið Rúv-drottning selur hæð með sjávarútsýni Lífið Stjörnulífið: Gugga og Mikael sjóðheit saman Lífið Bombur landsins fóru í bíó, bað og barre Lífið Halli gat ekki hamið sig, braut reglurnar og kyssti Jenu Lífið Met Gala-bölvunin alræmda Tíska og hönnun Hittu sjálfan Jacquemus í New York Tíska og hönnun Jökull, Goggi og Róbert Wessman í leikhúsi draumanna Lífið Ástin sem hjálpar mittismálinu Áskorun Sigga hefur starfað lengi á toppnum hjá IKEA en ákvað 54 ára að fara í nám Lífið Skoðunarferð um nýja Landspítalann á HönnunarMars Lífið Fleiri fréttir Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Patrick Muldoon er látinn Endurlífguðu Kilmer með gervigreind fyrir fornleifamynd „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Cruise tekur á loft í þriðja sinn Gaylord Focker deyr ekki drottni sínum Joy Harmon er látin Höfði í stóru hlutverki í æsispennandi stiklu Tæplega helmingur tilnefndra leikara til Eddunnar erlendur Leikarinn Michael Patrick látinn eftir baráttu við MND Ólétt af fyrsta barni ári eftir andlát fyrrverandi Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Hugmyndir að hámhorfi um páskana Sjá meira