Segja „fljúgandi Chernobyl“ hafa flogið í fimmtán klukkustundir Samúel Karl Ólason skrifar 26. október 2025 08:12 Vladimír Pútin, forseti Rússlands, á fundi með herforingjum sínum í morgun. AP/Forsetaembætti Rússlands Ráðamenn í Rússlandi segjast hafa lokið tilraunum með kjarnorkuknúna eldflaug sem getur einnig borið kjarnorkuvopn. Stýriflaugin á að hafa verið á loft í fimmtán klukkustundir og flogið um fjórtán þúsund kílómetra en Vladimír Pútín, forseti, segir vopnið vera einstakt. Ekkert annað ríki búi yfir sambærilegu vopni.
Tilraunaskotið var, samkvæmt Valerí Gerasímóv, varnarmálaráðherra, framkvæmt þann 21. október og að stýriflaugin hafi sýnt umtalsverða getu til að breyta um stefnu á flugi, sem gæti gert henni kleift að komast fram hjá loftvarnarkerfum. Þar sem stýriflaugin á að vera knúin með kjarnorku á drægni hennar að vera svo gott sem ótakmörkuð. Sérfræðingar hafa þó áhyggjur af því að slys geti valdið mikilli geislavirkni. Eldflaugin ber heitið „Burevestnik“ en er kölluð SSC-X-9 Skyfall á Vesturlöndum. Í Bandaríkjunum er hún einnig kölluð „Fljúgandi Chernobyl“ vegna hættunnar á kjarnorkuslysi sem fylgir henni. Rússar höfðu unnið lengi að tilraunaskotinu á norðurslóðum en eldflauginni var skotið frá eyjaklasanum Novaya Zemlya, þar sem vísindamenn Rosatom, rússnesku kjarnorkustofnunarinnar, hafa í áratugi gert tilraunir með kjarnorku. Rússneska fréttaveitan RIA hefur eftir Pútín að tilraunirnar með Burevestnik hafi náð öllum þeim markmiðum til stóð að ná. Enn væri þó mikil vinna fyrir höndum við að gera eldflaugarnar tilbúnar í almenna notkun í átökum. Þá sagði hann á fundi með Gerasímóv að eldflaugarnar væru einstakar og nauðsynlegt væri að skoða nánar hvernig hægt væri að skilgreina þær. „Við þurfum að greina hvernig við eigum að nota þær og hefja undirbúning til að koma þessum vopnum til herafla okkar,“ sagði Pútín á fundinum. Putin says Russia successfully tested the 9M730 Burevestnik (SSC-X-9 Skyfall) — a nuclear-powered, nuclear-capable intercontinental cruise missile with theoretical unlimited range and the ability to evade missile defenses.The missile flew for 15 hours, 14,000 km.Putin claims… pic.twitter.com/diCstSRgzT— Clash Report (@clashreport) October 26, 2025 ‼️ Breaking 🇷🇺 Russia tested nuclear powered cruise missile Burevestnik (SSC-X-9 Skyfall) on 21 Oct 2025. The missile got range of 14000 km & 15 hrs flight. Courtesy: V.Putin & general V.GerasimovPic is old. pic.twitter.com/9onei1Owhd— KURYER🤔 (@RSS_40) October 26, 2025 Russia has successfully tested a long-range nuclear powered cruise missile called the Burevestnik, Gen, Valery Gerasimov tells Putin. He says missile was tested Oct. 21, travelled 14,000 kilometers and was aloft for 15 hours. pic.twitter.com/pkLOe9sq9I— Mike Eckel (@Mike_Eckel) October 26, 2025
Rússland Vladimír Pútín Norðurslóðir Kjarnorkuvopn Kjarnorka Hernaður Tsjernobyl Tengdar fréttir Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Rússar eru taldir líklegir til að gera á næstu dögum tilraun með nýja tegund stýriflauga sem getur bæði borið kjarnorkuvopn og er knúin af kjarnorku. Eldflaugin ber heitið „Burevestnik“ en er kölluð SSC-X-9 Skyfall á Vesturlöndum og hafa fregnir borist af því að skjóta eigi henni á loft á norðurslóðum. 8. ágúst 2025 13:46 Verja kjarnorkuvopn sín á norðurslóðum með leynilegu eftirlitskerfi Rússneski herinn hefur um árabil komið fyrir leynilegum skynjurum á hafsbotni í norðurhöfum til að vakta skipasiglingar Atlantshafsbandalagins. Eftirlitskerfið leynilega var búið til með tækni frá Svíþjóð og öðrum Vesturlöndum. 23. október 2025 17:00 Danir stórefla varnir Grænlands með freigátum og orustuþotum Dönsk stjórnvöld hafa í samráði við Grænlendinga tilkynnt um stóraukin hernaðarútgjöld vegna Grænlands og norðurslóða. Ákvörðunin þýðir miklar framkvæmdir á næstu árum í þessu næsta nágrannalandi Íslands og aukna viðveru herflugvéla og herskipa. 14. október 2025 21:21 Setja tæpar tvær billjónir í freigátur frá Bretlandi Ráðamenn í Noregi hafa gert samning við Breta um að kaupa fimm freigátur af gerðinni Type-26. Kaupsamningurinn hljómar upp á 136 milljarða norskra króna og er þetta meðal stærstu hergagnakaupa Norðmanna í sögunni. 2. september 2025 12:21 Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Kjarnorkuknúna beitiskipið Nakhimov aðmíráll var sjósett fyrr í vikunni, eftir að hafa verið í slipp í rúm tuttugu og fimm ár. Skipið, sem er 251 metra langt, verður líklega nýja flaggskip norðurflota Rússlands en fyrst þarf það og áhöfn þess að gangast ýmsar prófanir og æfingar. 20. ágúst 2025 09:47 Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Ætla að brenna rusl og skapa orku Innlent Fleiri fréttir Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Sjá meira
Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Rússar eru taldir líklegir til að gera á næstu dögum tilraun með nýja tegund stýriflauga sem getur bæði borið kjarnorkuvopn og er knúin af kjarnorku. Eldflaugin ber heitið „Burevestnik“ en er kölluð SSC-X-9 Skyfall á Vesturlöndum og hafa fregnir borist af því að skjóta eigi henni á loft á norðurslóðum. 8. ágúst 2025 13:46
Verja kjarnorkuvopn sín á norðurslóðum með leynilegu eftirlitskerfi Rússneski herinn hefur um árabil komið fyrir leynilegum skynjurum á hafsbotni í norðurhöfum til að vakta skipasiglingar Atlantshafsbandalagins. Eftirlitskerfið leynilega var búið til með tækni frá Svíþjóð og öðrum Vesturlöndum. 23. október 2025 17:00
Danir stórefla varnir Grænlands með freigátum og orustuþotum Dönsk stjórnvöld hafa í samráði við Grænlendinga tilkynnt um stóraukin hernaðarútgjöld vegna Grænlands og norðurslóða. Ákvörðunin þýðir miklar framkvæmdir á næstu árum í þessu næsta nágrannalandi Íslands og aukna viðveru herflugvéla og herskipa. 14. október 2025 21:21
Setja tæpar tvær billjónir í freigátur frá Bretlandi Ráðamenn í Noregi hafa gert samning við Breta um að kaupa fimm freigátur af gerðinni Type-26. Kaupsamningurinn hljómar upp á 136 milljarða norskra króna og er þetta meðal stærstu hergagnakaupa Norðmanna í sögunni. 2. september 2025 12:21
Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Kjarnorkuknúna beitiskipið Nakhimov aðmíráll var sjósett fyrr í vikunni, eftir að hafa verið í slipp í rúm tuttugu og fimm ár. Skipið, sem er 251 metra langt, verður líklega nýja flaggskip norðurflota Rússlands en fyrst þarf það og áhöfn þess að gangast ýmsar prófanir og æfingar. 20. ágúst 2025 09:47