Styttist í stóra ákvörðun vegna Sundabrautar Smári Jökull Jónsson skrifar 13. október 2025 12:15 Guðmundur Valur Guðmundsson er formaður verkefnastjórnar Sundabrautar. Á myndinni til hægri má sjá Kleppsvík en deilt er um hvort brú eða göng sé betri kostur í þverun víkarinnar. Vísir/Lýður Valberg/Egill Formaður verkefnastjórnar hjá Vegagerðinni segir eitt af markmiðum Sundabrautar að auka ekki umferð í íbúagötum. Von er á umhverfismati vegna Sundabrautar á næstu dögum og mun Reykjavíkurborg í kjölfarið auglýsa tillögu að breyttu aðalskipulagi þar sem fram kemur hvort göng eða brú yfir Kleppsvík verður fyrir valinu.
Vegagerðin tilkynnti í vikunni mat þeirra að Sundabrú yfir Kleppsvík væri fýsilegri kostur en göng. Að sögn Guðmundar Vals Guðmundssonar, formanns verkefnastjórnar um Sundabraut hjá Vegagerðinni, væri brú hagkvæmari kostur í rekstri og byggingu. „Hún sparar fleiri kílómetra í akstri í heildina á höfuðborgarsvæðinu, hefur betri umferðarleg áhrif en göngin. Auðvitað eru göngin ekki eins sýnileg, þau hafa það með sér,“ sagði Guðmundur í hádegisfréttum Bylgjunnar. Mosfellsbær tengist ekki beint en nýtur þó ávinnings Leiðin yfir eða undir Kleppsvík er fyrsti áfangi Sundabrautar. Í heild nær hún alla leið í Kollafjörð og leiðin frá Gufunesi þangað yrði þveruð með blöndu af landfyllingum og brúm á Leiruvogi og Kollafirði. Þingmaðurinn Guðlaugur Þór Þórðarson hefur fjallað um aðra lausn, að gerð yrðu göng alla leið frá Kollafirði og að Sæbraut sem kæmu upp á ýmsum stöðum, meðal annars í Mosfellsbæ. Sundabraut eins og hún er hugsuð tengist ekki í Mosfellsbæ en að sögn Guðmundar Vals myndi hún létta á umferð þar í gegn. „Næsta tenging er þá inni í Grafarvoginum þar sem eru tvenn gatnamót. Mosfellsbær tengist ekki beint í Sundabrautina en nýtur mikils ávinnings af því að minnka umferð um Vesturlandsveg sem þýðir að það þarf ekki að stækka umferðarmannvirki þar sem ella þyrfti.“ „Á sumum götum minnkar umferð, á öðrum götum eykst hún lítillega“ Tilkynningin Vegagerðarinnar fyrir helgi vakti viðbrögð íbúa bæði í Laugardal og Grafarvogi sem hafa áhyggjur af því að brúarsmíði þýði aukna umferð inn í íbúahverfi. Í Laugardal myndi brú tengjast inn á Holtaveg en göng beint inn á Sæbrautina. Guðmundur segir umferðarmynstrið breytast með tilkomu Sundabrautar, hvort sem byggð yrði brú eða göng. „Á sumum götum minnkar umferð, á öðrum götum eykst hún lítillega og inni í hverfunum, það er eitt af skilgreindum markmiðum verkefnisins og áherslum borgarinnar að það valdi ekki aukinni umferð á þeim götum sem við viljum ekki hafa umferð eins og inni í íbúagötunum. Það verða gerðar ráðstafanir til að koma í veg fyrir það, það gildir eins hvort sem það er göng eða brú,“ segir Guðmundur Valur. „Holtavegur verður þannig búinn að það verði ekki umferð að leita í gegnum hverfin og þar yrði greið leið um Sundabrautina og inn á Sæbraut, við gerum ráð fyrir því og líkön okkar sýna að þangað leiti umferðin.“ Hann segir áhyggjur íbúa í hverfunum eðlilegar á þessu stigi málsins. „Fyrir göngin að þá er einungis ein tenging í Grafarvoginum af því að það þarf að komast undir Kleppsvíkina. Það tekur langan tíma að komast upp úr þeim og það er bara rými fyrir eina tengingu sem þýðir að sú tenging dregur að sér töluverða umferð. Sem eykur þá umferð meira heldur en brúarlausnin í Grafarvoginum á ákveðnum götum. Þetta eru mjög eðlilegar áhyggjur íbúa á þessu stigi.“ Opinberuðu ekki neitt sem ekki var áður birt Varaformaður íbúasamtaka Laugardals gagnrýndi Vegagerðina fyrir tilkynningu sína fyrir helgi og sagði að í samráðshópi um Sundabraut hefði verið sammælst um að bíða eftir að umhverfismat Sundabrautar yrði birt. Guðmundur segir Vegagerðina hafa verið að bregðast við umræðu og ekki opinberað neitt sem ekki hefði áður verið birt. „Ég er alveg sammála og það er alveg sjónarmið, að bíða með þar til allt væri aðgengilegt. Þarna vorum við bara að reyna að koma inn í umræðuna með ákveðnar skýringar. Svo er leiðarvalið endanlegt í aðalskipulagi Reykjavíkurborgar“ Von er á umhverfismati vegna Sundabrautar frá Skipulagsstofnun í dag eða á morgun. Í framhaldinu fara fram upplýsingafundir með íbúum í Laugardal, Grafarvogi, Mosfellsbæ, Kjalarnesi og Akranesi. Eftir að umhverfismat er birt tekur við sjö vikna lögbundinn umsagnarfrestur. „Þegar niðurstaða umhverfismats liggur fyrir þá gerir borgin ráð fyrir að auglýsa tillögu að breytingu á aðalskipulagi sem birtist þá einn kostur, hvort sem það er brú eða göng. Það byggir þá á allri þessari vinnu sem búið er að leggja í varðandi framkvæmdina og umhverfismatið og þær útfærslur sem þar hafa verið. Við höfum verið að leggja áherslu á hver séu markmið framkvæmdarinnar og hvor kosturinn mætir því best, það er það sem við erum að horfa á fyrst og fremst,“ sagði Guðmundur að lokum.
Umferð Sundabraut Vegagerð Samgöngur Reykjavík Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Veður Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Innlent Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Innlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Fleiri fréttir Sparkað í lögreglumann og sjúkraflutningamaður sleginn Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Meirihluti hlynntur samfélagsmiðlabanni unglinga Knapi datt af baki Miðaði byssu á annan mann Tveir lagðir við gangstéttina Enn brotist inn í miðbænum „Þetta voru þrjátíu til sextíu sekúndur og allt húsið var að brenna“ Fundu byssur í bílum og handtóku fimm Greinir á við kjósendur sína Maður á sjötugsaldri kýldi konu til blóðs í miðbænum Þrír handteknir eftir átök í heimahúsi Sexan millilendir aftur í Reykjavík Siggi stormur sár en dregur ekki í land Sveitarstjóri hefur miklar áhyggjur af ástandi Vestfjarðavegar Grunaður um sölu fíkniefna á Þjóðhátíð Efnahags- og Evrópumál, hvalveiðar og laxeldi á landi á Sprengisandi Handtóku níu og nutu liðsinnis sérsveitar vegna staks eggvopns Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús við Þingvallavatn eyðilagðist í eldsvoða Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Sjá meira