Stefndi á ÓL en lést í slysi á æfingu Sindri Sverrisson skrifar 29. september 2025 11:32 Naufal Takdir Al Bari ætlaði sér stóra hluti í fimleikunum. FIG Hinn 19 ára gamli Naufal Takdir Al Bari stefndi á keppni í fimleikum á Ólympíuleikunum í Los Angeles árið 2028. Hann lést eftir slys á æfingu í Rússlandi.
Indónesíska fimleikasambandið greindi frá andláti þessa unga íþróttamanns eftir að hann hafði verið í tólf daga á gjörgæslu þar sem reynt var að bjarga lífi hans. Al Bari mun hafa látist vegna alvarlegra meiðsla á hálsi, eftir að hann féll ofan í gryfju þegar hann var við æfingar á svifrá. Samkvæmt erlendum miðlum hafði hann sett stefnuna á næstu Ólympíuleika en ætlaði sér fyrst að standa sig vel á heimavelli, á HM í Jakarta í næsta mánuði. 🇮🇩 Naufal Takdir Al BariIn Artistic Gymnastics, his last stage was the Asian Championships in Korea.A young dreamer, carrying the hope of Los Angeles 2028, taken from us too soon.Rest in peace, Naufal.Your journey may have stopped,but your legacy will forever fly. 🤍 pic.twitter.com/bF6Ib7042m— Asian Gymnastics Union (@officialAGU) September 27, 2025 „Indónesískir fimleikar hafa misst landsins besta mann. Þetta er þungt högg og mikil sorg fyrir okkur. Megi fjölskyldu hans vera veittur styrkur,“ sagði Ita Yuliati, talskona indónesíska fimleikasambandsins, sem lýsti Al Bari sem hæfileikaríkum íþróttamanni og góðri manneskju. Fox News hefur eftir varaformanni rússneska fimleikasambandsins, Vasily Titov, að Al Bari hafi verið að reyna æfingar sem hann var ekki búinn undir. „Við höfum lokið nauðsynlegri rannsókn og nú liggur fyrir hverjar aðstæðurnar voru þegar meiðslin urðu. Því miður var íþróttamaðurinn ekki undirbúinn fyrir svo flókna aðgerð,“ sagði Titov en ekki liggur fyrir hvaða æfingu Al Bari var að reyna að gera.
Fimleikar Andlát Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir „Átti erfitt með að bæta Barça“ Býst við harðri samkeppni frá Verstappen Snýr Trent aftur til Liverpool? Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Grindjánar pakksaddir eins og ellefu ára Stefán Árni Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Stólarnir komnir með reynslubolta fyrir Drungilas Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Framlengir í Vesturbænum Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Velti fyrir sér að hoppa í ána Danskir vallarstarfsmenn þurfa að vinna á næturna vegna Evrópuleikja Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Var haldið vakandi í 36 tíma eftir greininguna og spilaði samt Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Forsetinn segir Ronaldo enn vera lykilmann í landsliðinu Dagskráin: Meistaradeild, Bónus kvenna, Extra og Lokasóknin Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Fjórar íslenskar stelpur mættust í markaleik í Texas „Hann sagði já takk“ Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sjá meira