Menningarmálaráðherrann ósáttur og vill skrúfa fyrir fjármagn til ísraelsku kvikmyndaverðlaunanna Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 18. september 2025 07:47 Menningarmálaráðherrann Miki Zohar var ekki allskostar ánægður með val ísraelsku kvikmyndaakademíunnar að þessu sinni og hótar að skrúfa fyrir fjárstuðning ríkisins. Vísir/EPA Menningarmálaráðherra Ísraels hefur hótað algjörum niðurskurði á fjárframlögum til ísraelsku kvikmyndaverðlaunanna eftir að mynd um palestínskan dreng hreppti aðalverðlaun hátíðarinnar í fyrradag.
Ophir verðlaunin eru á pari við Edduna á Íslandi eða Óskarsverðlaunin í Bandaríkjunum og að þessu sinni var það kvikmyndin Hafið sem þótti best. Hún fjallar um tólf ára gamlan dreng frá Vesturbakkanum sem vill ferðast til Tel Aviv til þess að sjá hafið í fyrsta sinn. Hann lendir hinsvegar í ógöngum þegar hann reynir að komast í gegnum öryggishlið sem aðskilur Vesturbakkann frá Ísrael og er meinaður aðgangur af hermönnum. Drengurinn laumast síðar inn fyrir hliðið og faðir hans reynir svo að hafa upp á honum. Myndin fjallar um dreng sem dreymir um að sjá hafið með berum augum. Miki Zohar, sem gegnir stöðu menningarmálaráðherra í ríkisstjórn Benjamíns Netanjahú brást ókvæða við þegar Hafið bar sigur úr býtum. Hann sendi frá sér yfirlýsingu á samfélagsmiðlinum X þar sem hann segir verðlaunin blauta tusku í andlit ísraelskra borgara og að á hans vakt muni ísraelsk stjórnvöld ekki fjármagna hátíð sem hræki framan í hetjur ísraelshers, eins og hann orðaði það. Að óbreyttu mun Hafið verða framlag Ísraela til bestu erlendu myndarinnar á næstu Óskarsverðlaunum og í raun er óljóst hvort menningarmálaráðherrann hafi vald til að skrúfa fyrir fjármagn til verðlaunahátíðarinnar, að því er segir í umfjöllun BBC.
Ísrael Palestína Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira