Trump segir öfga-vinstrið bera ábyrgð á morðinu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 11. september 2025 06:45 Kirk átti það sameiginlegt með varaforsetanum J.D. Vance að hafa efast um Trump í upphafi en seinna orðið meðal dyggustu stuðningsmanna forsetans. Getty/Mark Wilson Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa staðfest að enginn sé í haldi í tengslum við morðið á Charlie Kirk en upplýsingar þess efnis voru afar misvísandi í gærkvöldi.
Samkvæmt yfirlýsingu yfirvalda í Utah segir að tveir hafi verið handteknir og látnir lausir í kjölfar skotárásarinnar en leitin að morðingjanum standi enn yfir. Talið sé að árásarmaðurinn hafi skotið á Kirk af þaki nálægrar byggingar en frekari upplýsingar verði ekki veittar að svo stöddu. Donald Trump Bandaríkjaforseti ávarpaði landsmenn í nótt á myndskeiði sem hann birti á samfélagsmiðli sínum, Truth Social. Talaði hann um myrka stund fyrir Bandaríkin og sagði „öfga-vinstrimenn“ bera ábyrgð á morðinu. Sagði hann ábyrgðina á höndum þeirra sem viðhefðu orðræðu á borð við það að líkja mönnum eins og Kirk, sem var dyggur stuðningsmaður Trump, við Nasista. Forsetinn ákvað að flaggað yrði í hálfa stöng fram á sunnudag. Fólk safnaðist saman í nótt fyrir utan Timpanogos-sjúkrahúsið, þangað sem Kirk var fluttur í kjölfar árásarinnar. Joe Biden og Barack Obama, fyrrverandi Bandaríkjaforsetar, hörmuðu árásina og vottuðu fjölskyldu Kirk samúð sína. Hróp og köll brutust hins vegar út á þinginu, í kjölfar þagnar í minningu Kirk. Þar vildu þingmenn Repúblikanaflokksins kenna Demókrötum um morðið en Demókratar hrópuðu til baka að ef til vill væri kominn tími til að setja almennilega skotvopnalöggjöf.
Bandaríkin Skotárásir í Bandaríkjunum Donald Trump Morðið á Charlie Kirk Mest lesið Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu Innlent Þrír látnir eftir að rútu var ekið á biðskýli Erlent Helgi Pétursson er látinn Innlent Vitinn á Gjögurtá fallinn í sjó fram Innlent „Algjört vandræðamál og sorglegt“ Innlent Kom ekki til greina hjá starfshópi en nú líkleg niðurstaða Innlent Sprengdu næst stærstu olíudælustöð Rússlands Erlent Svona stór er nýja moskítóflugan í samanburði Innlent Herja á umsækjendur um alþjóðlega vernd Innlent Klóraði sig til blóðs meðan hann svaf Innlent Fleiri fréttir Hætta notkun metanhemjandi íblöndunarefnis Rannsaka tengsl Epstein við Clinton Þrír látnir eftir að rútu var ekið á biðskýli Sprengdu næst stærstu olíudælustöð Rússlands Sautján ára og í leit að peningum fyrir spöngum „Þeir sem leika sér að eldinum munu brenna upp til agna“ Rufu einangrun jaðarhægrisins til að afnema umhverfisreglur Enginn ákærður eftir umdeilt þrjú hundruð manna áhlaup Átján ára látnir svara spurningalista um hæfni þeirra til herþjónustu Vilja ekki feita innflytjendur Embættismenn hafa áhyggjur af sölu F-35 herþota til Sádi Arabíu BBC biður Trump afsökunar en hafnar bótakröfu Eldar í nær öllum hverfum eftir árásir Rússa á Kænugarð Óttast að Úkraínumenn verji Pokrovsk of lengi „Áratugur er ekki langur tími fyrir þá sem lifðu af“ „Ég er sá sem getur fellt hann“ Leiðtogi AfD segir Rússa ekki ógna Þýskalandi en varar við Pólverjum Minnast þess að tíu ár eru frá hryllingnum í París Lætur ráðherra fjúka vegna umfangsmikils spillingarmáls Alríki fjármagnað út janúar 2026 Stríð Trumps við fjölmiðla teygir sig yfir Atlantshafið Vörpuðu milljörðum erfðabreyttra fræja yfir akra Afganistan Sagði Trump hafa varið klukkustundum með fórnarlambi sínu Bruni jarðefna nær hámarki fyrir 2030 standi menn við orð sín Stærsta flugmóðurskip heims komið til Karíbahafsins Bandamenn Starmer óttast hallarbyltingu Tuttugu fórust þegar tyrknesk herflugvél hrapaði Loftmengun í Delí langt yfir öryggisviðmiðum Efnaðir Ítalir sagðir hafa myrt fólk í Sarajevo sér til ánægju Kom til átaka á mótmælum vegna COP30 Sjá meira