Mál úgandsks stríðsherra gæti haft þýðingu fyrir Pútín og Netanjahú Kjartan Kjartansson skrifar 8. september 2025 11:37 Joseph Kony, leiðtogi Andspyrnuher drottins í Úganda. Hann gæti verið ákærður fyrir stríðsglæpi að sér fjarstöddum. AP/Stuart Price Saksóknarar við Alþjóðaglæpadómstólinn ætla að leggja fram gögn til að styðja ákæru á hendur úgöndskum stríðsherra vegna stríðsglæpa og glæpi gegn mannkyninu að honum fjarstöddum. Málið er sagt geta haft fordæmisgildi þar sem grunaður maður er ekki í haldi, til dæmis fyrir Vladímír Pútín og Benjamín Netanjahú.
Joseph Kony er grunaður um morð, kynlífsánauð og nauðganir á þeim tíma sem hann leiddi Andspyrnuher drottins sem hélt norðanverðu Úganda í heljargreipum á sínum tíma. Hann er talinn á lífi en á flótta, mögulega á landamærum Miðafríkulýðveldisins og Suður-Darfúr í Súdan. Þrátt fyrir það ætla saksóknarar að leggja fram gögn til að styðja ákæru á hendur honum fyrir Alþjóðaglæpadómstólnum. Dómarar geta ákveðið að staðfesta ákærurnar eða vísa þeim frá en ekki er hægt að fella dóm yfir Kony að honum fjarstöddum. AP-fréttastofan segir að málið gegn Kony geti verið prófmál fyrir þá sem eru grunaðir um glæpi gegn mannkyninu eða stríðsglæpi en eru ekki í haldi. Alþjóðaglæpadómstóllinn hefur gefið út handtökuskipanir á hendur bæði Vladímír Pútín Rússlandsforseta og Benjamíns Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, vegna stríðsglæpa í Úkraínu annars vegar og á Gasa hins vegar. Hersveitir Kony voru virkar á 10. áratug síðustu aldar en misstu þrótt á fyrsta áratug þessarar aldar. Hann hefur ekki fundist þrátt fyrir tilraunir til þess að svæla hann út. Furðuleg samfélagsmiðlaherferð gerði hann að heimsþekktu nafni í stutta stund árið 2012 en þá deildi fjöldi stórstjarna eins og Kim Kardashian og Rihanna myndbandi sem bandarísk samtök gerðu um glæpi Kony gegn börnum.
Úganda Erlend sakamál Hernaður Mannréttindi Átök í Ísrael og Palestínu Innrás Rússa í Úkraínu Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira