Höfuðstöðvar KFC í Vestur-Evrópu segjast hafa svipt leyfishafa KFC í Danmörku leyfinu til að reka veitingahús undir nafni Kentucky Fried Chicken en Íslendingar hafa rekið keðjuna í Danmörku frá því hún leit þar fyrst dagsins ljós árið 1986.
Í dag kom út þáttur danska ríkisútvarpsins er nefnist „Kjúklingasvindl KFC“ þar sem ljósi er varpað á óábyrgt verklag danska arms skyndibitakeðjunnar, en þar viðgekkst að nýir merkimiðar væru prentaðir þegar ferskur, þíddur kjúklingur hafði ekki verið eldaður fyrir síðasta notkunardag.
KFC í Vestur-Evrópu tilkynnti í dag að hún hefði tímabundið lokað öllum 11 veitingastöðum sínum í Danmörku í kjölfar eftirlitsaðgerðar á veitingastöðunum. Fyrr í mánuðinum fengu þrjú veitingahús keðjunnar einnig neikvæða umsögn frá matvælastofnun Danmerkur hinar fengu alla hlutlausa. Engin fékk jákvæða einkunn.
Samkvæmt fjölda fyrrverandi KFC starfsmanna sem DR ræddi við, höfðu KFC-staðir í Danmörku í gegnum árin notað sérstaka svikabragð til að geta notað kjúkling aðeins lengur: þeir „framlengja“ kjúklinginn.
Í spjallhóp nokkurra starfsmanna á KFC-veitingastað í Árósum með samræðum frá upphafi árs 2023 til miðs árs 2024 skrifa starfsmennirnir reglulega um að „framlengja“ kjúkling, að því er DR greinir frá. Þar sem einnig eru erlendir starfsmenn á veitingastaðnum vísa starfsmennirnir yfirleitt til athafnarinnar með ensku sögninni „extend“. Að sögn starfsmannanna eru framlengingarnar í andstöðu við leiðbeiningar KFC. Árið 2023 var einnig greint frá löku heilsuháttarverklagi í Tilst.
Fjörutíu ára saga ofurstaættarinnar nú á enda
„Meint athæfi er ekki í samræmi við skilmála og skyldur sem kveðið er á um í samningum okkar um leyfisveitingar,“ skrifar keðjan og bætir við að hún hafi sagt upp danska leyfishafa sínum, sem þýðir veitingastaðakeðjan lokar í Danmörku.
Núverandi leyfishafi er fyrirtækið Isken ApS og fostjóri þess er hinn 52 ára Bjartmar Þrastarson en sem fyrr segir hefur hann nú misst leyfið.

Þröstur Júlíusson, faðir Bjartmars, opnaði fyrsta KFC staðinn í Danmörku árið 1986. Feðgarnir fluttust frá Fáskrúðsfirði til Kaupmannahafnar 1983. Bjartmar er dag giftur íslenskri konu, Guðrúnu Stefánsdóttur, og saman eiga þau dóttur en fjölskyldan býr í Danmörku.
Samkvæmt opinberum gögnum í fyrirtækjaskrám hefur Bjartmar verið forstjóri KFC í Danmörku síðan 2008 en þar kemur fram að hann sé í dag 100 prósenta eigandi í Isken ApS. Reyndar var greint frá því árið 2018 að umsvifamikill veitingamaður að nafni Mustafa Sahin hafi keypt 49 prósenta hlut í keðjunni en ekki fundust upplýsingar um hvort hann væri enn meðal eigenda.
Danskir miðlar taka margir fram í fréttaflutningi um málið að þeir hafi leitað eftir viðbrögðum frá Bjartmari vegna málsins en hann ekki svarað fyrirspurnum fjölmiðla.