Breska ríkisútvarpið greinir frá því að öryggiskerfið í kringum umsóknarferlið fyrir miðakaupum hafi gripið nafn mannsins og komið í veg fyrir að hann gæti sent inn umsókn um miða.
Aðeins rúmir tveir mánuðir eru síðan að eltihrellirinn mætti á mót þar sem Raducanu var að keppa, með þeim afleiðingum að tenniskonan brast í grát og faldi sig á bak við stól dómarans. Hann var í kjölfarið settur í nálgunarbann.
Daginn áður en maðurinn mætti á völlinn þegar Raducanu var að keppa hafði hann sent henni bréf og beðið hana um mynd á kaffihúsi.
Í kjölfarið dæmdi lögreglan í Dúbaí hann í nálgunarbann og nafn hans sett á svartan lista tennisyfirvalda.