Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi í morgun frá sér fréttatilkynningu þar sem fram kom að lögregla hefði verið kölluð að hóteli í miðborginni á áttunda tímanum í morgun vegna „alvarlegs atviks“.
Sérsveitarmenn voru kallaðir út til að aðstoða við lögregluaðgerðir, staðfestir Helena Rós Sturludóttir, samskiptastjóri Ríkislögreglustjóra, í samtali við fréttastofu. Starfsmaður Edition staðfesti einnig í samtali við Vísi á ellefta tímanum að lögregluaðgerð stæði þar yfir.

Fjórir sjúkraflutnignabílar og dælubíll voru kallaðir til að hótelinu á áttunda tímanum í morgun, að sögn varðstjóra slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, sem kvaðst ekki getað sagt meira um málið og vísaði á lögreglu þegar fréttastofa hafði samband.
Heimir Ríkharðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir við Vísi að hann geti ekki gefið upp frekari upplýsingar um málið að svo stöddu. Þá vildi hann ekki tjáð sig um hvort einhvern hafi sakað.
Í tilkynningu lögreglu segir að rannsókn málsins væri á algjöru frumstigi. Frekari upplýsingar verði sendar fjölmiðlum í dag, eða eftir því sem málinu vindur fram. Blaðamanni og ljósmyndara fréttastofu vara vísað af vettvangi á tólfta tímanum í dag. Forsvarsmenn Edition hafa ekki svarað beiðni fréttastofu um viðbrögð.

Veistu meira um málið? Sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.