Innlent

Grunaðir um að neyða pilt upp í bíl og gefa honum raf­stuð

Jón Þór Stefánsson skrifar
Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur.
Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur. Vísir/Vilhelm

Fjórmenningar hafa verið ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, frelsissviptingu, hótanir og rán vegna atviks sem er sagt hafa átt sér stað á ótilgreindum laugardegi á síðasta ári.

Mönnunum er gefið að sök að svipta pilt, sem er ólögráða, frelsi sínu í allt að 45 mínútur, en fram kemur að pilturinn hafi verið gestkomandi þar sem atvik málsins áttu sér stað í Reykjavík.

Sakborningarnir fjórir hafi verið í bíl sem einn þeirra ók. Tveir hinna hafi síðan sótt piltinn, leitt hann að bílnum og látið hann setjast inn í hana gegn vilja sínum. Síðan hafi þeir tekið af honum símtæki, heyrnartól og svo farið með hann á annan stað í Reykjavík.

Lýsingar á grófu ofbeldi

Þar eru fjórmenningarnir sagðir hafa farið úr bílnum og byrjað að beita piltinn ofbeldi. Pilturinn hafi fallið í jörðina fyrir vikið en sakborningarnir slegið hann margsinnis með krepptum hnefum og sparkað margsinnis í höfuð hans og búk meðan hann lá á jörðinni.

Einn sakborninganna er sagður hafa gefið piltinum rafstuð með rafmagnsvopni í báða handleggi.

Annar þeirra er grunaður um að ota hnífi að hálsi, bringu og kviðarholi piltsins og hótað að drepa hann og fjölskyldu hans ef hann segði frá.

Skilinn eftir með mikla áverka

Sakborningarnir eru sagðir hafa skilið hann eftir beran að ofan og skólausann.

Vegna árásarinnar mun pilturinn hafa hlotið heilahristing, tannbrot og marga sáverka á höfði, á handleggjum og á brjóstkassa.

Móðir piltsins krefst þess fyrir hönd sonar síns að fjórmenningarnir greiða 4,5 milljónir króna í skaða- og miskabætur.

Það er héraðssaksóknari sem ákærir mennina. Málið verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×