Tíska og hönnun

Mikil til­hlökkun fyrir stærstu tískuhátíð í heimi

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Stórstjarnan Doja Cat lifði undir nafni á Met Gala 2023 þar sem hönnuðurinn Karl Lagerfeld var heiðraður.
Stórstjarnan Doja Cat lifði undir nafni á Met Gala 2023 þar sem hönnuðurinn Karl Lagerfeld var heiðraður. Dimitrios Kambouris/Getty Images for The Met Museum/Vogue

Fyrsti mánudagur í maí er runninn upp sem er gjarnan uppáhalds mánudagur tískuunnenda. Ástæða þess er að Met Gala, stærsta tískuhátíð í heimi, fer fram í New York í kvöld. 

Heitustu tískuhús heims velja á hverju ári þær stjörnur sem henta merkinu best og bjóða þeim að klæðast splunkunýjum flíkum fyrir þetta stóra kvöld. Laufey Lín lét sig ekki vanta í fyrra og hún rokkaði bleikan síðkjól frá tískuhúsinu Pra­bal Gur­ung.

Vonandi verður Laufey meðal gesta í kvöld en frægustu stjörnur heims eru fastagestir hátíðarinnar. Má þar nefna Kim Kardashian sem hefur farið á ári hverju síðan 2013, Kendall Jenner, Hadid systurnar Bella og Gigi, ofurfyrirsætan Naomi Campell, rapparinn Lil Nas X og fleiri að ógleymdri tískuguðmóðurinni Önnu Wintour. 

Rihanna hefur gjarnan verið senuþjófur á hátíðinni en mætti ekki í fyrra. Það verður spennandi að fylgjast með því hvort hún láti sjá sig. 

Lífið á Vísi verður að sjálfsögðu með puttann á púlsinum á glæsilegustu stjörnunum í ár. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.