Uppgjörið: Stjarnan - ÍBV 2-3 | Gott gengi Eyjamanna heldur áfram Smári Jökull Jónsson skrifar 28. apríl 2025 19:40 Eyjamenn gerðu góða ferð í Garðabæ. vísir/Lýður ÍBV vann í kvöld góðan útisigur á Stjörnunni þegar liðin mættust á Samsung-vellinum í Garðabæ. Lokatölur 3-2 og ÍBV komið upp í 2. - 3. sæti Bestu deildarinnar. Eftir fremur rólegar fyrstu tíu mínútur voru það gestirnir úr Eyjum sem hægt og rólega tóku leikinn yfir. Þeir voru mun beinskeyttari í sínum sóknarleik á meðan Stjörnuliðið sendi boltann sín á milli en komst lítið áleiðis. Mark Omar Sowe kom Eyjamönnum í forystu á 20. mínútu, ef það var þá markið hans því erfitt var að sjá hvort boltinn hafi farið af honum eða varnarmanni Stjörnunnar. Árni Snær í markinu horfði á eftir boltanum rúlla rólega í netið og virtist ekki hafa áttað sig á hvað væri í gangi. Hann gat þó lítið gert í öðru marki Eyjamanna. Það skoraði Bjarki Björn Gunnarsson með stórglæsilegu skoti fyrir utan teig, boltinn í þverslána og inn upp við samskeytin. Eyjamenn voru með öll völd á þessum tímapunkti og því kom mark frá Stjörnunni á 36. mínútu eins og þruma úr heiðskýru lofti. Það skoraði Sindri Þór Ingimarsson með skoti fyrir utan teig eftir aukaspyrnu en Marcel Zapytowski missti laust skot Sindra Þórs afar klaufalega í gegnum klofið á sér. Stjörnumenn hresstust aðeins við þetta og ógnuðu marki Eyjamanna meira á lokamínútum fyrri hálfleiks en þeir höfðu gert fram að því. Staðan í hálfleik 2-1 gestunum í vil. Síðari hálfleikur var öllu jafnari. Bæði lið sköpuðu hættu, Omar Sowe átti skot sem Stjörnumenn björguðu við markteiginn og þá fóru Garðbæingar afar illa með gott færi á skyndisókn þegar þeir voru komnir þrír gegn tveimur. Þegar Stjörnumenn höfðu náð að pressa ÍBV liðið í nokkrar mínútur fengu Eyjamenn hins vegar skyndisókn á 77. Mínútu sem Oliver Heiðarsson kláraði með frábæru skoti. Eyjamenn fengu færi til að bæta við eftir þetta en í uppbótartíma skoraði Sindri Þór sitt annað marki og gaf Stjörnumönnum von. Þeir fengu eina aukaspyrnu á lokasekúndunum sem nýttist ekki og ÍBV fagnaði góðum sigri. Lokatölur 3-2 og ÍBV komið í 2. - 3. sæti deildarinnar eftir sigurinn. Stjarnan er 6. sæti Bestu deildarinnar. Atvik leiksins Mark Bjarka Björns var algjörlega frábært. Hann fékk boltann rúllandi á móti sér og smellti honum upp í samskeytin, sláin inn. Ef við tölum um mikivægasta atvikið þá var markvarsla Marcel Zapytowski í stöðunni 2-1 gríðarstór. Hann varði þá frá Emil Atlasyni af stuttu færi og kom í veg fyrir að Stjarnan jafnaði og bætti um leið fyrir mistökin í fyrra marki heimamanna. Stjörnur og skúrkar Bjarki Björn Gunnarsson var frábær í liði Eyjamanna og besti maður vallarins. Hann skoraði stórkostlegt mark og fíflaði leikmenn Stjörnunnar í nokkur skipti með frábærum tilþrifum. Omar Sowe var sömuleiðis góður, duglegur að fá boltann og finna samherja. Hjá Stjörnunni var fátt um fína drætti og leikur liðsins einfaldlega ekki nógu góður. Sóknarleikurinn var hægur og fyrirsjáanlegur. Varamenn liðsins komu með smá kraft með sér sem dugði þó ekki til. Dómarinn Átti heilt yfir fínan leik. Aukaspyrnan sem var aðdragandinn að fyrra marki Stjörnunnar var þó ansi „soft“ og um leið dýr fyrir Eyjamenn þó Zapytowski í markinu hefði átt að gera betur. Gunnar Freyr Róbertsson var þó með ágæt tök á þessum leik. Stemmning og umgjörð Það var sæmileg mæting á Samsung-völlinn. Strax í kjölfar fótboltaleiksins fór fram leikur Stjörnunnar og Grindavíkur í Bónus-deild karla og voru ansi margir stuðningsmenn Stjörnunnar farnir yfir í íþróttahúsið áður en þessum leik lauk. Stuðningsmenn ÍBV voru nokkuð fjölmennir og heyrðist vel í þeim eftir því sem leið á leikinn. Besta deild karla Stjarnan ÍBV