Sagan var rifjuð upp í fréttum Stöðvar 2 og í þættinum Flugþjóðin en við stofnun Cargolux árið 1970 urðu Loftleiðir eigendur þriðjungs hlutafjár. Við sameiningu flugfélaganna árið 1973 færðist sá hlutur yfir til Flugleiða.

Árið 1982 glímdi Cargolux við fjárhagsvanda og þurfti á meira hlutafé að halda. Stjórn Flugleiða, sem á sama tíma átti fullt í fangi með að halda eigin félagi á floti, ákvað hins vegar að taka ekki þátt í hlutafjáraukninginni. Það þýddi að hluturinn í Cargolux þynntist út. Flugleiðir seldu svo síðustu hlutabréf sín í félaginu árið 1985.

Loftleiðahópurinn innan Flugleiða lagðist gegn sölunni en eiginkona Alfreðs Elíassonar, Kristjana Milla Thorsteinsson, sat þá í stjórn félagsins. Börn þeirra hjóna, þau Haukur Alfreðsson og Geirþrúður Alfreðsdóttir, segja að bæði faðir þeirra og móðir hafi verið andvíg sölunni á Cargolux.
„Mamma barðist á móti því að Cargolux yrði selt,“ segir Geirþrúður.
Hér má sjá fimm mínútna kafla úr þættinum þar sem Einar Ólafsson rekur jafnframt ástæður þess að hann lét af störfum sem forstjóri Cargolux:
„Við vorum rosalega ósáttir við þetta. Þetta voru náttúrlega alveg ægilegustu mistök sem Flugleiðir gerðu að láta þennan hlut fara,“ segir Jóhannes Kristinsson, fjárfestir og fyrrverandi flugstjóri hjá Cargolux.

Hann segir að vissulega hafi verið erfiðleikar hjá Flugleiðum á þessum tíma en togstreita hafi verið á milli forstjóra Flugleiða, Sigurðar Helgasonar eldri, og forstjóra Cargolux, Einars Ólafssonar.
„Forstjóri Cargolux var gamall Loftleiðamaður en þáverandi forstjóri Flugleiða var Sigurður Helgason, sem hafði hallað sér að Flugfélagi Íslands. Það greri aldrei um heilt þarna,“ segir Jóhannes Kristinsson.

„Það var Sigurður Helgason eldri, hann var alla tíð upp á móti þessu Cargolux-ævintýri. Hann var í miklu sambandi við Seaboard auðvitað og Seaboard sagði honum að þetta væri tóm vitleysa. Og hann trúði því að þetta væri tóm vitleysa og við það sat,“ segir Einar Ólafsson, sem var forstjóri Cargolux fyrstu tólf árin, frá 1970 til 1982.
„Flugleiðir hefðu ekki haft peninga í að halda þessu gangandi. Þetta er gífurlegt magn af peningum sem fer í þetta og Lúxarar hafa aðgang að þeim,“ segir Björn Sverrisson, fyrrverandi flugvélstjóri hjá Cargolux.

Cargolux telst í dag vera stærsta vöruflutningaflugfélag í Evrópu og það fimmta stærsta í heimi.
„Verðmæti Flugleiða væri svona fimmtánfalt ef þeir ættu sín 33 prósent,“ segir Jóhannes Kristinsson.