Tíska og hönnun

Gærurnar verða að hátísku

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Anna Þóra Björnsdóttir & Sólveig Einarsdóttir voru í góðum fíling á opnun sýningarinnar Þraut.
Anna Þóra Björnsdóttir & Sólveig Einarsdóttir voru í góðum fíling á opnun sýningarinnar Þraut. Aðsend

Sýningin Þraut // Leiðin frá gæru til vöru var opnuð með pompi og prakt í síðustu viku í verslun Felds Verkstæðis að Snorrabraut 56, sem hluti af Hönnunarmars. Tískuunnendur flykktust að en sýningin verður opin almenningi til og með 3. ágúst næstkomandi.

„Við vildum opna augu fólks fyrir þeim ferlum sem oft fara fram hjá neytendum og sýna hversu mikil natni og hugvit liggur að baki vöru sem margir þekkja en fáir skilja til fulls.

Í sýningunni er sjónum beint að framleiðsluferli íslenska lambaskinnsins, frá gæru til vandaðrar vöru. Markmiðið er að varpa ljósi á það handverk, þá þekkingu og sjálfbæru nálgun sem liggur að baki hráefnisins og þessum menningararfi.

Sýningin er bæði upplýsandi og lifandi, þar sem gestir geta snert, skoðað og upplifað efnið. Hún hentar jafnt börnum og fullorðnum og er áhugaverð fyrir alla sem hafa áhuga á íslensku hráefni, sjálfbærni, hönnun og menningu,“ segir í fréttatilkynningu.

Hér má sjá myndir frá opnunarteitinu:

Anna Þóra Björnsdóttir & Sólveig Einarsdóttir voru í góðum fíling og rokkuðu að sjálfsögðu feldinn.Aðsend
Nöfnurnar Birna Sísí og Valgerður Birna.Aðsend
Kristín Birgisdóttir & Helga Sigurðardóttir brostu breitt.Aðsend
Sýningin þraut stendur fram í ágúst.Aðsend
Sýningin hentar öllum aldurshópum.Aðsend
Stuð og leikur!Aðsend
Ferlið frá gæru til vöru er sett fram á sýningunni Þraut.Aðsend
Elín Dagný og Jana heilsukokkur létu sig ekki vanta.Aðsend
Sólveig Einarsdóttir, Silja Geirsdóttir og Aldís Arthursdóttir tóku vel á móti gestum.Aðsend
Það má finna alls konar hluti á sýningunni.Aðsend
Jana Víglunds, Sólveig Einarsdóttir, Elínborg Kolbeinsdóttir og Marta Heiðarsdóttir.Aðsend
Glæsilegar mæðgur! Pattra Sriyanonge mætti með dóttur sinni. Aðsend
Heiðar Sigurðsson feldskeri.Aðsend
Valgerður Birna og Marta Hreiðarsdóttir flottar.Aðsend
Anna Björns og dóttir Pöttru í knúsi.Aðsend
Tómas og Silja.Aðsend
Vignir Heiðarsson og Birta Dís Kaldal.Aðsend
Barn að leik.Aðsend





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.