Körfubolti

„Á meðan að pabbi er for­maður mun ég ekki skipta um lið“

Aron Guðmundsson skrifar
Jónína Þórdís, leikmaður Ármanns, hefur lagt sitt á vogaskálarnar til þess að koma kvennaliði félagsins í körfubolta aftur á laggirnar. Nú er það búið að tryggja sér sæti í efstu deild
Jónína Þórdís, leikmaður Ármanns, hefur lagt sitt á vogaskálarnar til þess að koma kvennaliði félagsins í körfubolta aftur á laggirnar. Nú er það búið að tryggja sér sæti í efstu deild Vísir/Sigurjón Ólason

Fimm ár eru síðan að Jónína Þór­dís Karls­dóttir endur­vakti kvenna­lið Ár­manns í körfu­bolta. Liðið hefur nú tryggt sér sæti í efstu deild frá og með næsta tíma­bili. Sex­tíu og fimm ár eru liðin síðan liðið var þar síðast.

Ár­mann hefur borið höfuð og herðar yfir önnur lið í fyrstu deildinni á yfir­standandi tíma­bili og unnið alla leiki sína til þessa. Með sigri gegn B-liði Stjörnunnar á dögunum var sæti í efstu deild á næsta tíma­bili tryggt.

„Þetta var náttúru­lega bara ólýsan­leg til­finning,“ segir Jónína Þór­dís Karls­dóttir, leik­maður liðsins um stundina þegar að sætið var tryggt. „Þetta hefur verið löng veg­ferð hjá okkur og ég held ég geti talað fyrir allt liðið þegar að ég segi að þetta hafi verið alveg stór­kost­leg stund.“

Bónus deildin bíður eftir kvennaliði Ármanns.Aðsend mynd

Stóð á krossgötum

Jónína hefur gegnt lykil­hlut­verki í endur­vakningu kvenna­liðsins hjá upp­eldis­félaginu. Hug­mynd sem kviknaði hjá henni þegar að hún stóð fimmtán ára gömul á kross­götum.

„Ár­mann er mitt upp­eldis­félag og þegar að ég vildi fara spila í meistara­flokki rak ég mig á það að það væri ekkert lið. Ég skipti því um félag til þess að fara spila í efstu deild, spilaði þar fyrir Val og Stjörnuna, en svo hætti ég í körfu­bolta sau­tján ára gömul, spilaði ekki í þrjú ár.“

Jónína fer síðan að þjálfa yngri flokka hjá Ár­manni þar sem einn af núverandi leik­mönnum meistara­flokksins, Auður Hreins­dóttir, viðraði áhyggjur sínar við hana því hún vildi ekki fara frá Ár­manni til að spila í meistara­flokki.

„Hún spyr mig um ráð. Á þessum tíma stóð ekki til hjá mér að fara spila aftur en ég segi við hana eigin­lega án þess að hugsa „þú ert ekki að fara neitt, ég er að fara stofna meistara­flokkslið.“ Auður er nú frekar ró­leg týpa en varð svo svaka­lega spennt fyrir þessu að ég ein­hvern vegin gat ekki tekið þetta til baka. Ég fer því og ræði þetta við pabba og hann er til í þetta.“

„Pabbi ég er komin með tólf leikmenn“

Faðir Jónínu er Karl Guðlaugs­son, núverandi þjálfari og for­maður köruknatt­leiks­deildar Ár­manns.

„Ég fór að hugsa hvernig við gætum gert þetta. Ég átti þarna vin­konur úr yngri lands­liðunum sem voru allar að spila í efstu deild. Ég vildi fá þær til okkar en með þær spilandi í efstu deild fannst þeim þetta svolítið klikkuð hug­mynd. Ég tók því upp símann, hringdi í allar stelpur sem ég vissi að væru hættar í körfu­bolta og mér fannst skemmti­legar, kom svo til baka í stofuna tveimur tímum seinna og sagði „pabbi ég er komin með tólf leik­menn.“

Síðan eru liðin fimm ár og eftir veru í fyrstu deild er Ár­mann nú aftur búið að tryggja sér sæti í efstu deild.

Sæti í Bónus deildinni fagnað Aðsend mynd

„Þetta hafa verið stór­kost­leg ár. Þegar að þetta hófst fórum við af stað í ein­hverja þriggja ára geggjaða veg­ferð þar sem að þetta var í raun og veru bara eitt­hvað stemnings­lið. En þetta var bara svo skemmti­legt. 

Svo fyrir síðasta tíma­bil, þegar að við erum að fara inn í fjórða árið, fór maður að hugsa að það gæti verið gaman að gera eitt­hvað meira, reyna koma liðinu upp. Við fórum að ræða þetta okkar á milli ég, pabbi og þau sem koma að liðinu. Við fengum til okkar nýja leik­menn, settum okkur þetta mark­mið að reyna komast upp í efstu deild.“

„Var í raun búin að missa leikgleðina“

Ætlunar­verkið tókst hins vegar ekki, var í raun langt frá því að takast þar sem að Ár­mann komst ekki einu sinni í úr­slita­keppnina. Jónína íhugaði að láta gott heita.

„Ég var alveg gríðar­lega svekkt, var eigin­lega alveg í öngum mínum, af því að þarna fannst mér ég hafa misst þetta stemnings­lið sem við stelpurnar höfðum búið til á kostnað þess að við ætluðum að vera svo ógeðs­lega góðar og vinna deildina. Ég var í raun búin að missa leik­g­leðina, pældi í því að hætta en svo fór ég til pabba og sagðist vera til í eitt ár í viðbót ef við myndum setja í fimmta gír og fara alla leið.

Jónína fann leik­g­leðina á ný og töfrar áttu sér stað.

„Við stelpurnar náðum núna að setja saman þetta full­komna lið sem við erum búnar að reyna setja saman mjög lengi. Bæði erum við með ótrú­lega sterka leik­menn sem passa vel saman inn á vellinum og ekki síður félags­lega og þá eru allir sáttir með sitt hlut­verk í liðinu. Bæði vorum við með geggjað lið körfu­bolta­lega séð og móralskt lega séð. Það var draumurinn ein­hvern veginn.“

Leikmenn Ármanns mynda fullkomna heild innan sem utan vallar.Aðsend mynd

Og að gera þetta í sam­floti með pabba sínum er sér­stakt.

„Allir sem þekkja mig vita að ég og pabbi eigum ein­stakt sam­band. Bæði hefur hann þjálfað mig í um tuttugu ár og svo á hann fyrir­tæki þar sem að ég vann fyrir hann í átta ár. Við pabbi vinnum mjög vel saman.“

Rukkar vinkonur um loforð

Fram­undan vera í Bónus deildinni þar sem að Jónína ætlar að inn­heimta lof­orð frá vin­konum sínum í efstu deild.

„Við mætum rosa­lega vel stemmdar. Ég á nokkrar vin­konur sem eru búnar að lofa að koma til mín þegar að við loksins komum upp. Ég er náttúru­lega lög­fræðingur og mun rukka þær um þessi lof­orð. Við ætlum bara að byggja á okkar kjarna og styrkja okkur. Erum bara rosa­lega spennt fyrir því.“

Tíma­bilin 2020-2021 og 2021-2022 var Jónína valin besti leik­maður fyrstu deildarinnar, þá var hún fram­lags­hæsti ís­lenski leik­maður deildarinnar árin 2022-2023 og 2023-2024. Jafn­framt hefur hún Hefur hún jafn­framt verið valin í úr­vals­lið fyrstu deildar þrisvar sinnum.

Yfir þetta fimm ára tíma­bil hefði Jónína hæg­lega geta spilað með liði í efstu deild en hjarta hennar slær með Ár­manni.

„Mér finnst náttúru­lega gaman í körfu­bolta en það er ekkert leyndar­mál að ég er svolítið að þessu fyrir félagið, hef mikla ástríðu fyrir því, finnst gaman að vinna með pabba og vil gefa til baka. Jú það hafa fullt af liðum reynt að stela mér en ég held að allir viti það og ég get alveg sagt að á meðan að pabbi minn er for­maður í þessu félagi mun ég ekki skipta um lið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×