Viðskipti innlent

Hildur ráðin for­stjóri Advania

Árni Sæberg skrifar
Hildur Einarsdóttir er nýr forstjóri Advania á Íslandi.
Hildur Einarsdóttir er nýr forstjóri Advania á Íslandi. Advania

Hildur Einarsdóttir er nýr forstjóri Advania á Íslandi. Hún tekur við starfinu af Ægi Má Þórissyni, sem gegnt hefur starfinu í tæp tíu ár en tekur nú við lykilhlutverki í framkvæmdastjórn Advania-samstæðunnar.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Hildur sé reynslumikill stjórnandi og leiðtogi. Fyrr í þessum mánuði hafi hún látið af störfum sem framkvæmdastjóri rannsókna- og þróunarsviðs hjá Emblu Medical, áður Össuri, þar sem hún hafi starfað í sextán ár. Hún hafi víðtæka reynslu og þekkingu á nýsköpun, stefnumótun og alþjóðlegum sölu- og markaðsmálum. Hún sé rafmagns- og tölvuverkfræðingur frá Háskóla Íslands með meistaragráðu í læknisfræðilegri verkfræði frá Imperial College London. Hildur hafi einnig lokið stjórnendanámi við Harvard Business School.

„Það er mikill heiður að fá tækifæri til þess að starfa fyrir jafn metnaðarfullt félag og Advania. Ég er full tilhlökkunar að kynnast nýjum samstarfsfélögum og þeim fjölmörgu viðskiptavinum sem nýta sér lausnir og þjónustu Advania. Upplýsingatækni er í gríðarlegum vexti og heldur áfram að gegna mikilvægu hlutverki víðsvegar í samfélaginu. Tækifærin til framþróunar eru óþrjótandi; á sviðum gervigreindar, stafrænnar þjónustu, sjálfbærni og net- og rekstraröryggismála svo örfá dæmi séu nefnd,“ er haft eftir Hildi.

Ægir í mannauðsmálin

Við ráðninguna stígi Ægir Már Þórisson úr forstjórastólnum og taki að sér að leiða mannauðs- og vinnustaðamenningu félagsins þvert á lönd og markaði. Starfsmenn Advania séu nú ríflega fimm þúsund talsins, á 53 starfsstöðvum í níu löndum.

„Uppgangur félagsins hefur verið ótrúlegur undanfarin ár og Advania er orðið stærsta óskráða upplýsingatæknifélag Evrópu, með ársveltu upp á 250 milljarða króna. Vöxturinn byggir alfarið á starfsfólkinu, vinnulaginu okkar og einstakri fyrirtækjamenningu. Í mínum huga er ekkert mikilvægara en að hlúa áfram að mannauðnum og búa svo um hnútana að fólk fái notið hæfileika sinna. Þannig heldur félagið okkar áfram að stækka og dafna um ókomna tíð. Ég hlakka svo sannarlega til þess að taka við nýju hlutverki,“ er haft eftir honum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×