Körfubolti

Martin: „Fór rosa­lega fyrir brjóstið á mér að heyra það“

Aron Guðmundsson skrifar
Martin Hermannsson hleður í eitt af skotum sínum í leiknum
Martin Hermannsson hleður í eitt af skotum sínum í leiknum Vísir/Anton Brink

Martin Her­manns­son, fyrir­liði ís­lenska lands­liðsins í körfu­bolta, segir leikinn gegn Tyrkjum þar sem að lands­liðið tryggði sæti sitt á EM með skemmti­legustu leikjum sem hann hefur tekið þátt í. Hins vegar fór um­ræðan um liðið fyrir leikinn fyrir brjóstið á honum.

Ísland tryggði sér sæti á Evrópumótinu í körfubolta í sumar með 83-71 sigri gegn Tyrklandi í lokaleik undankeppninnar. Liðið þurfti sigur til að tryggja EM-sætið og kláraði verkefnið með stæl gegn gríðarsterku tyrknesku liði.

„Það var lítið sofið nóttina eftir leik. Spennu­fallið svaka­legt,“ segir Martin í sam­tali við íþrótta­deild. „Allur undir­búningurinn sem fór í þennan leik, bæði líkam­lega og and­lega, er búinn að vera mikill. Það er langt síðan að það var svona mikill fiðringur hjá mér persónu­lega fyrir ein­hverjum leik. Þegar að svona mikið er undir nær maður ekki að hugsa um neitt annað. Á sama tíma er ég að koma heim í þrjá daga, hitta fjöl­skyldu og vini og reyna að vera alls staðar. Það er búið að vera mikið álag síðustu daga en það var þungu fargi af mér létt í gær. Ég get alveg viður­kennt það. Nú er bara spenningur fyrir sumrinu.“

Hann muni ekki eftir því að hafa spilað lands­leik þar sem að fólk var byrjað að mæta á undan honum og liðinu í höllina. 

„Mér fannst það rosa­lega sér­stakt og skemmti­legt á sama tíma. Það ýtti enn meira undir kvíðann og stressið en þetta var bara magnað móment í gær. Þetta var ein­hver skemmti­legasti leikur sem ég hef tekið þátt í. Allt í kringum leikinn, leikurinn sjálfur, að gera þetta með mörgum af mínum bestu vinum og fyrir framan fjöl­skylduna. Mamma og pabbi höfðu heldur ekki séð mig spila í langan tíma. Þetta var ein stór gleði­stund. Eitt­hvað sem mun gefa mér gæsa­húð um ókomin ár, maður mun líta til baka með miklu stolti og gott að eiga þennan leik í vasanum þegar að strákarnir mínir fara að spyrja hvort ég hafi getað eitt­hvað í gamla daga.“

Uppselt var á landsleik Íslands og Tyrklands þegar Ísland vann sig inn á EM.vísir/Anton

Fullkomið öskubuskuævintýri

Hann á erfitt með að lýsa sigurstundinni. 

„Þessum leik og þessu öllu. Þetta er eitt­hvað ösku­buskuævintýri sem var skrifað full­kom­lega. Allur undir­búningurinn fyrir leik, allir leikirnir sem við spiluðum í þessari undan­keppni voru bara frábærir. Þetta er það skemmti­legasta sem maður gerir og við eigum þetta svo skilið líka. Ég vona að fólk átti sig á allri vinnunni sem við erum búnir að leggja í þetta. Við vorum grát­lega nálægt því að fara á HM síðast. Liðið á þetta skilið. Við erum að upp­skera eins og við höfum sáð.“

Stóðu við stóru orðin

Ís­land með lið á stór­móti í körfu­bolta í fyrsta sinn síðan árið 2017. Eftir tap gegn Ung­verja­landi í næstsíðustu um­ferð undan­keppninnar sýndu strákarnir okkar mátt sinn og megin gegn Tyrk­landi þegar allt var undir. Um­ræðan um liðið sem spratt upp eftir tapið gegn Ung­verjum, þar sem að sigur hefði tryggt EM sætið fyrir loka­um­ferðina, fór fyrir brjóstið á Martin.

„Ég heyrði það eftir leikinn gegn Ung­verja­landi að fólk talaði um að þegar að við þurftum að skila inn úr­slitum, þegar að pressan væri á okkur, þá næðum við ekki að sýna það. Það fór rosa­lega fyrir brjóstið á mér að heyra það. Að fólk væri að tala um það hingað og þangað að við værum ekki nógu and­lega sterkir eða góðir í að klára leiki þegar að við þurftum að klára þá. Ég held að við höfum staðið við öll stóru orðin í gær. Sýnt hvað við erum ógeðs­lega góðir í körfu­bolta. Hvað við erum gott lið og hvað allir eru að berjast fyrir hvorn annan. Maður er eigin­lega bara smá orð­laus og svífandi um á bleiku skýi.“

Gleðin var ósvikin í leikslok hjá leikmönnum ÍslandsVísir/Anton Brink

Martin er ekki alveg búinn að átta sig á því hvaða áfanga landsliðið var að ná. 

„Ég held að það komi með tímanum á næstu dögum þegar að maður nær að anda meira og léttar. Síminn er búinn að vera á fullu. Ótrú­legasta fólk sem maður er búinn að vera að knúsa. Maður finnur að fólk er spennt fyrir þessu. Finnur hvað það er mikil orka og áhugi á körfu­bolta akkúrat núna. Það er það sem við viljum. Fyrir mér er þetta skemmti­legasta íþrótt í heimi og vonandi erum við að sýna fleirum það. Sem Ís­lendingur viltu eiga lið í stærstu íþróttunum á stór­móti. Það var allt og langt liðið síðan að við vorum þar síðast. Ég hugsa að fólk sé byrjað að safna fyrir miða. Þú vilt ekki missa af þessu.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×