Viðskipti innlent

Halda á miðin þrátt fyrir kvóta „upp í nös á ketti“

Árni Sæberg skrifar
Loðnuveiðimenn á Barða NK eru í startholunum. Hér má sjá kollega þeirra á Beiti NK.
Loðnuveiðimenn á Barða NK eru í startholunum. Hér má sjá kollega þeirra á Beiti NK. Vísir/Sigurjón

Barði NK, uppsjávarskip Síldarvinnslunar, mun taka loðnunótina um borð í dag og halda til veiða eftir að loðnukvóti var gefinn út í gær.

„Loðnukvótinn sem gefinn var út í gær var ekki merkilegur en engu að síður skapaði hann þessa klassísku loðnuspennu,“ segir í tilkynningu á vef Síldarvinnslunar. 

Gæti verið ríflega milljarðs virði

Hafrannsóknastofnun tilkynnti í gær að loðnustofninn hefði mælst nægilega sterkur til að óhætt væri að heimila veiðar, en þó mjög takmarkaðar. Atvinnuvegaráðherra brást snarlega við og gaf út loðnukvóta. Af ráðleggingu Hafró um 8.600 tonna kvóta fá íslenskar útgerðir um 4.600 tonn í sinn hlut.

Útgerðarmenn sem fréttastofan ræddi við síðdegis í gær telja að það ætti að vera hægt að finna meiri loðnu. Þeir þrýsta á Hafrannsóknastofnun að leita betur og tala um sín á milli að skipuleggja eigin leit.

Þessir sömu útgerðarmenn sögðust áætla að örkvótinn gæti skilað yfir eins milljarðs króna útflutningstekjum, ef loðnunni verður komið heilfrystri á verðmætustu markaði, til að mynda í Japan.

Spenntir og glaðir

Í tilkynningu Síldarvinnslunar er haft eftir Þorkatli Péturssyni, skipstjóra á Barða NK, að um borð væru menn kátir og glaðir.

„Það er alltaf gaman að glíma við loðnuna þó kvótinn sé eins og upp í nös á ketti. Þegar nótin verður komin um borð verður haldið rakleiðis í Faxaflóann en loðnan er sennilega komin þangað. Það er tilhlökkun að fá að kasta á loðnu og vonandi verður gott veður. Mér skilst að stefnt sé að því að vinna hrygnuna sem veiðist fyrir Japansmarkað og hænginn þá fyrir markað í Austur-Evrópu.“


Tengdar fréttir

Loðnumælingar gefa ekki ástæðu til bjartsýni

Bráðabirgðaniðurstöður bergmálsmælinga Hafrannsóknarstofnunar sýna að heildarmagn fullorðinnar loðnu sem myndar veiðistofn vertíðarinnar, er aðeins um tveir þriðju þess sem mældist í september 2024. Það er því fyrirséð að þessar mælingar sem lokið er við nægja ekki til að breyta fyrri ráðgjöf um að engar veiðar verði leyfðar veturinn 2024/2025.

Fjögur skip hefja leit að loðnu

Fjögur skip eru núna að hefja loðnuleit í veikri von um að bjarga megi loðnuvertíð. Kristján Már Unnarsson var staddur við höfuðstöðvar Hafrannsóknastofnunar í Hafnarfirði í kvöldfréttum Stöðvar 2. Hann sagði loðnuvertíðina skipta miklu máli fyrir þjóðarbúið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×