Innlent

Samúel Jói fær þrjú og hálft ár en tví­burarnir tvö og hálft

Jón Þór Stefánsson skrifar
Samúel Jói, og tvíburabræðurnir Elías og Jónas Shamsudin hafa verið sakfelldir fyrir stórfelld fíkniefnabrot.
Samúel Jói, og tvíburabræðurnir Elías og Jónas Shamsudin hafa verið sakfelldir fyrir stórfelld fíkniefnabrot. Stöð 2

Samúel Jói Björgvinsson hlaut þriggja og hálfs árs fangelsisdóm í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Tvíburabræðurnir Elías og Jónas Shamsudin hlutu tveggja og hálfs árs dóm hvor.

Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari hjá Héraðssaksóknara, í samtali við fréttastofu.

Þremenningarnir voru ákærðir fyrir að hafa í vörslum sínum 2,9 kíló af MDMA-kristöllum og 1781 MDMA-töflu. Sérfræðingur í lyfja- og eiturefnafræði sagði fyrir dómi að úr þessum tæpu þremur kílóum af MDMA-kristöllum væri hægt að framleiða um 23 þúsund MDMA-töflur. Samanlagt væri því um að ræða um það bil 25 þúsund neysluskammta.

Sáust á upptöku

Efnin voru geymd í skrifstofuhúsnæði sem bræðurnir höfðu einhver umráð yfir í Bæjarlind í Kópavogi. Lögreglan fékk upplýsingar um efnin, sem voru falin í lofti herbergis í húsnæðinu, og skipti þeim út fyrir gerviefni. Jafnframt kom hún fyrir upptökubúnaði.

Að kvöldi miðvikudagsins 2. október sóttu þremenningarnir gerviefnin og í kjölfarið voru þeir handteknir. Myndbandsupptökur lögreglu voru lykilsönnunargögn málsins, og voru brot úr þeim sýnd fyrir dómi. Vísir fjallaði ítarlega um aðalmeðferð málsins sem fór fram í lok janúar. 

Hafi reynt að taka á sig sökina

Samúel Jói sagði efnin hafa verið í sinni vörslu, en hann þó ekki verið eigandi þeirra. Eigandinn væri einstaklingur sem væri ekki ákærður í málinu. 

Hann sagði fyrir dómi að hann hefði verið í neyslu á þessum tíma og verið hræddur við að geyma efnin heima hjá sér. Hann hefði því fengið að geyma þau í húsnæðinu sem Elías og Jónas höfðu umráð yfir.

Elías sagðist hafa vitað af því að Samúel væri að geyma efnin. Jónas sagðist hins vegar ekki hafa haft neina vitneskju um þau fyrr en þeir sóttu þau í húsnæðið, kvöldið sem þeir voru handteknir.

Karl Ingi sagði í málflutningi að Samúel Jói hefði verið margsaga. Hann hefði breytt framburði sínum hjá lögreglu og reynt að taka sökina alfarið á sig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×