Byrlunar- og símamálið: þáttur blaðamanna féll á fyrningu Eva Hauksdóttir skrifar 5. febrúar 2025 12:32 Ráðherra fór á veitingahús og gleymdi þar spjaldtölvu. Enginn setti svefnlyf í bjórinn hennar, hún bara gleymdi henni. Ekki á náttborðinu heima hjá sér, heldur á almannafæri. Hún er ekkert sú eina sem sem hefur lent í því. Hver sem einhverntíma hefur gleymt skilríkjunum sínum, veskinu, lyklunum, gleraugunum eða hvað það annars er sem við getum ekki verið án, á það á hættu að missa sjónar af tölvu eða síma. Það þarf ekki einu sinni lyfjabyrlun til, bara andartaks hugsunarleysi. Einkalíf og almannahagsmunir Áslaug Arna gleymdi ekki "aðal-vinnutölvunni" heldur tölvu sem hún hafði helst til einkanota. Hún var reyndar að vinna á umræddri einkatölvu þann daginn, eitthvað svona smá. Mörg okkar gera það. Páll Steingrímsson notaði t.d. einkasímann sinn til þess að spjalla við kollega sína um hluti sem tengdust vinnunni. Nánar tiltekið "skæruliðadeild Samherja" eins og þau kölluðu sig í hálfkæringi. En það var ekki "aðal-vinnusíminn" hans sem var gripinn af náttborðinu hans — þegar hann var liðinn út af — og afritaður á meðan hann lá á gjörgæslu. Það var bara einkasíminn hans þar sem hann geymdi allt einkalíf sitt, eins og t.d. samtöl við börnin sín og myndir úr svefnherberginu. Hafi hann á annað borð átt eitthvað djúsí stöff um Samherja þá var það ekki vistað á einkasímanum hans. Ráðherra gleymdi tölvunni sinni á bar. Hún var svo heppin að starfsmaður geymdi tölvuna og skilaði henni. Vonandi án þess að hnýsast í messenger-samtöl eða önnur einkagögn. Þessi heiðarlegi starfsmaður hefði ekkert þurft að skila tölvunni. Hann hefði getað farið með hana í Útvarpshúsið við Efstaleiti, eða á Útvarp Sögu, og látið blaðamann fá hana. Og blaðamaðurinn hefði svo getað látið afrita tölvuna, allt heila draslið, og afhent það kollegum sínum, í von um að finna kannski eitthvað djúsí stöff. Hvað gerist ef tölva í eigu ráðherra lendir í höndum blaðamanns? Kannski tölva með myndum úr svefnherberginu. Nú eða þá gögnum sem varða öryggismál ríkisins, sem eru undanþegin upplýsingarétti almennings. Má blaðamaðurinn láta afrita tölvu eða síma ráðherra, bara svona til að tékka á því hvort þar leynist eitthvað áhugavert? Við eigum því miður ekki von á að fá svar dómstóla við því alveg á næstunni. Ríkissaksóknari staðfesti nefnilega nýverið niðurfellingu lögreglustjórans á Norðurlandi eystra á kærum gegn blaðamönnum sem komust yfir síma Páls Steingrímssonar og þar með aðgang að öllu hans einkalífi. Lögreglan telur sakborninga ekki saklausa Skiljanlega fagna blaðamenn þessari niðurstöðu. Blaðamenn vilja að sjálfsögðu hafa sem ríflegastar heimildir til að afla gagna. En niðurstaðan er nú samt sem áður ekki sú að blaðamönnum sé frjálst að skoða síma eða önnur tæki í von um að finna djúsi stöff, án þess að hafa hugmynd um að hverju þeir eru að leita. Hvað blaðamennina varðar féll málið nefnilega niður vegna fyrningar. Þegar lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra ákvað að hætta rannsókn, birti embættið greinargerð á Facebook, þar sem sjónarmið lögreglunnar voru reifuð og rök færð fyrir niðurfellingu. Þar segir m.a. Sakarefni samkvæmt 228. og 229. gr. alm. hgl. lýtur að brotum á friðhelgi einkalífs meðal annars með því að hnýsast í, afrita, sýna, skýra frá, birta eða dreifa í heimildarleysi skjölum, gögnum, myndefni, upplýsingum eða sambærilegu efni um einkamálefni viðkomandi. Þar er afstaða Lögreglustjóraembættisins á Norðurlandi eystra að allir sakborningar í málinu gætu hafa sýnt af sér atferli sem getur flokkast undir brot á framangreindum ákvæðum. Af hálfu brotaþola var ákvörðun lögreglu kærð til Ríkissaksóknara sem kallaði eftir rökstuðningi lögreglu fyrir niðurfellingu málsins. Í greinargerð lögreglu til Ríkissaksóknara kemur fram að tafir sem orðið hafi á rannsókn málsins, m.a. vegna aðgerða sakborninga, hafi valdið því að brot gegn friðhelgi einkalífs fyrndust. Um þá hegðun sakborninga að afla sér fréttaefnis á þann hátt sem gert var, segir m.a.: Þessar fréttir sem skrifaðar voru upp úr spjallþráðum og öðru innihaldi símans voru að mati embættisins á engan hátt þannig að þessi hegðun væri réttlætanleg með tilliti til almanna eða einkahagsmuna. [...] Þessir aðilar sem þarna voru í samskiptum virðist á engan hátt hafa verið að skipuleggja neinar ólögmætar aðgerðir gegn einum eða neinum og í rauninni ekki að tala um neitt sem var ólöglegt. Lögreglan taldi aftur á móti að þar sem ekki hefði tekist að sanna hver hefði afritað símann og vegna fyrningar væru ekki forsendur til að halda rannsókninni áfram. Ríkissaksóknari gerir engar athugasemdir við þessar röksemdir lögreglu. Niðurstaðan er alls ekki sú blaðamönnum sé heimilt að brjótast inn í síma eða önnur tæki til þess að leita að bara einhverju. Málið var ekki fellt niður gagnvart blaðamönnum með þeim rökum að blaðamenn hafi lögum samkvæmt ríkari rannsóknarheimildir en lögregla, heldur féll það á fyrningu. Fyrningu sem sakborningar stuðluðu sjálfir að. Málið féll á formsatriði. Alveg eins og mál Seðlabankans gegn Samherja. Höfundur er réttargæslumaður Páls Steingrímssonar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eva Hauksdóttir Byrlunar- og símastuldarmálið Mest lesið Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég er ekki Evrópusinni Óðinn Freyr Baldursson skrifar Skoðun Hjarðarbólsoddi Oddur Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta snýst um aðild Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna „nei“ er eina rökrétta svarið þann 29. ágúst Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hvaða kröfur eigum við að gera? Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna venjulegt launafólk á að segja JÁ? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar Skoðun Er kominn tími á „Íslenska landklasann“? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um hvað er hægt að semja? Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Sumarið, samveran og samspil taugakerfa Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Þegar peningarnir og pólitíkin mæta nýjum veruleika Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bíp... bíp... bíp… Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Króna eða evra? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Dauðans alvara – fölsuð lyf og ólögleg lyfsala Alma D. Möller,Rúna Hauksdóttir skrifar Skoðun Hvað er samfélagsmiðill? Anna Laufey Stefánsdóttir skrifar Skoðun Stöðugleiki í heljargreipum Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Landlægur misskilningur um þjóðaratkvæðagreiðslu Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Það sem gögnin fundu ekki Elliði Vignisson skrifar Skoðun Eru Íslendingar afglapar í samningatækni? Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Baldur snýr heim á Breiðafjörð Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar allir bera ábyrgð? Snorri Birgisson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru samningaviðræður Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Dagur, bannað að plata! Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Íslenska sumarveðrið dýrmæt auðlind? Gunnar Salvarssson skrifar Skoðun Við þurfum ekki að kaupa gervigreindarfullveldið að utan Hafsteinn Einarsson skrifar Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Ég hélt að ég væri bara óvenju hrætt foreldri Heiðrún V. Ingudóttir skrifar Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Standast orkufyrirtæki ríkisins grundvallargildi fjármálaráðherra? Embla Einarsdóttir skrifar
Skoðun Stóra leiðréttingarmálið, einhverjir Hollendingar og kollegar Guðlaugur Þór Þórðarson skrifar
Skoðun Fullvinnsla heima, tollfrjálsir markaðir og raunhæf leið til að styrkja Krónuna og landsbyggðina Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Siðferðilegt aflátsbréf - Um kerfisbundna notkun góðgerðarstarfs til að kaupa sér starfsleyfi Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Vernd dýraheilbrigðis á Íslandi í ljósi reglna um frjálst flæði vöru á innri markaði ESB Erna Bjarnadóttir skrifar