Geðveikt fjör á Bessastöðum Geðhjálp 30. janúar 2025 15:27 Frá vinstri eru Erla Rut Mathiesen, verkefnastjóri hjá Geðhjálp, Svava Arnardóttir, formaður Geðhjálpar, Halla Tómasdóttir, forseti Íslands og Guðný Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjá Geðhjálp. Mynd/Geðhjálp. Þriðjudaginn 28. janúar heimsótti Svava Arnardóttir, formaður Geðhjálpar, Bessastaði þar sem forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, tók á móti G vítamín geðræktardagatalinu. Með Svövu í för voru þær Erla Rut Mathiesen og Guðný Guðmundsdóttir verkefnastjórar hjá Geðhjálp. „
Það var ánægjulegt að setjast niður með Höllu forseta þar sem hún gaf okkur góðan tíma í alvöru samtal um geðheilbrigðismál frá víðu sjónarhorni,“ segir Svava. „Við ræddum meðal annars um áhrif tækninnar á geðheilsuna og hvernig við getum komið með mótvægi við þjáningunni sem kom bersýnilega í ljós síðasta sumar og haust. Við vorum sammála um það að við viljum stuðla að breyttri menningu sem hlúir að geðheilsu landsmanna og gerir okkur kleift að lifa góðu lífi í gefandi tengslum.“ G-vítamín er árlegt 30 daga geðræktarátaki sem Geðhjálp stendur fyrir og hefst alltaf á bóndadegi, fyrsta degi í þorra. G-vítamín geðræktardagatalið fæst á vef Geðhjálpar og í völdum verslunum Krónunnar. „Við í Geðhjálp teljum ástæðu til að auka umræðu um allt það sem hægt er að grípa til í svartasta skammdeginu svo að við náum að þreyja þorrann með ágætis geðheilsu í farteskinu. Halla forseti deildi með okkur sínum G-vítamínum, eða dæmum um það sem hún nýtir til að rækta geðheilsu sína. Hún nefndi til að mynda gleði og húmor“, sagði Svava og sýndi upptöku þar sem Halla forseti sagði: „Mitt G-vítamín er gleði. Ég vel þegar ég vakna á morgnana, gleði á aðra öxlina og hugrekki á hina, og mér finnst þetta skipta máli, með hvaða geði ég fer út í daginn. En svo er auðvitað hægt að rækta gleðina með ýmsum hætti, bros er til dæmis eitthvað sem getur lýst upp daginn fyrir sjálfan þig sem og aðra. Að umkringja þig fólki sem hefur húmor og setur gleðina á oddinn auðveldar manni að vinna sig í gegnum erfið verkefni, hvort sem það er manns eigið geð eða bara einhver krefjandi verkefni í vinnunni.“ Hér má horfa á Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, segja frá sínu G-vítamíni: Klippa: G vítamín Geðhjálpar - Halla Tómasdóttir, forseti Íslands. Á næstu 30 dögum munu birtast hér á Vísi greinar sem fjalla um átakið, auk þess sem eitt G-vítamín mun birtast á forsíðunni á Vísi daglega meðan átakið stendur yfir. Einnig munu útvarpsstöðvarnar Bylgjan, FM957 og X977 vekja athygli á átakinu, fjalla um G vítamín dagsins og fjalla almennt um geðheilbrigði. Í ár selur félagið dagatal með svokölluðum G vítamínskömmtum sem eru ráðleggingar sem er ætlað að bæta geðheilsu. Í völdum dagatölum leynast svo geðræktandi vinningar. Svava Arnardóttir, formaður Geðhjálpar, og Halla Tómasdóttir, forseti Íslands.Mynd/Geðhjálp. G-vítamín dagatalið kostar 2.900 kr. og er hægt að kaupa það á vef Geðhjálparog í völdum verslunum Krónunnar. Allur ágóði þess rennur í Styrktarsjóð geðheilbrigðis en tilgangur sjóðsins er að stuðla að framförum í geðheilbrigðismálum með því að veita styrki til verkefna sem geta bætt geðheilbrigði landsmanna og auka skilning á geðheilsu og geðrænum vanda.
Geðheilbrigði G vítamín Heilsa Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Opnar sig um bótoxnotkunina Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval Menning Hvað veistu um… London? Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Fleiri fréttir Allt í ferðalagið og jafnvel það sem þú vissir ekki að þig vantaði Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Úr verkfræðinni í listina: „Stundum verður maður bara að fylgja innsæinu“ Beint flug til Portó Daría fagnar tíu árum – úr lítilli snyrtivöruverslun í lífsstílsverslun Hlaupa fyrir Ljósið í Reykjavíkurmaraþoninu Harpa býður heim á 15 ára afmæli á Menningarnótt Bylgjan fagnar 40 árum með stórveislu á Menningarnótt Gamall klassíker fær helvíti góða yfirhalningu Golfmót FM957 Vinsælasta ABBA-sýning heims í Hörpu og Hofi „Ísland, biðin er á enda!“ Loksins hægt að panta ilmvötn á Boozt Allt undir einu þaki í hjarta Hafnarfjarðar „Ég hélt að ég þyrfti bara að harka af mér“ Afmælisbomba í Beautybox og verk Sögu Sig í pottinum Þurrsjampó eru ekki öll eins, svona velur þú réttu vöruna fyrir þitt hár Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Grillaður Gaggalagú með leynisósu landsliðskokksins Sjá meira