Frá þessu segir á vef Hagstofunnar. Þar kemur fram að uppsjávarafli hafi verið 545 þúsund tonn og dregist saman um 42 prósent frá fyrra ári vegna aflabrests á loðnu.
„Botnfiskafli árið 2024 var 421 þúsund tonn sem er aukning um 4% frá fyrra ári. Þá var flatfiskafli 24 þúsund tonn og skelfiskafli 3.700 tonn.
Aflamagn í desember 2024 var rúmt 61 þúsund tonn sem er 32% meiri afli en í desember árið á undan. Botnfiskafli í mánuðinum var 29 þúsund tonn og jókst um 8%. Þar af var þorskaflinn um 16 þúsund tonn, 6% minni en í desember 2023. Uppsjávarafli var 31 þúsund tonn sem er 67% meira en í desember 2023.
Upplýsingar um fiskafla sem birtast í þessari fréttatilkynningu eru bráðabirgðatölur. Þær byggjast á upplýsingum Fiskistofu sem berast frá löndunarhöfnum innanlands, útflytjendum afla og frá umboðsmönnum erlendis og er safnað af Fiskistofu,“ segir í tilkynningunni.