Viðskipti innlent

Endur­greiða raf­orku­fram­leiðendum þrjá milljarða

Atli Ísleifsson skrifar
Guðmundur Ingi Ásmundsson er forstjóri Landsnets.
Guðmundur Ingi Ásmundsson er forstjóri Landsnets. Vísir/Einar

Landsnet endurgreiðir sex raforkuframleiðendum samtals um þrjá milljarða króna í dag vegna svokallaðs innmötunargjalds, þar af Landsvirkjun 2,4 milljarða.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsvirkjun en gjaldið var hluti af flutningsgjöldum Landsnets og var lagt á í byrjun árs 2022. 

„Það var innheimt í 18 mánuði, fram til september 2023. Hæstiréttur Íslands úrskurðaði gjaldtökuna ólögmæta 5. júní sl. og staðfesti þar með niðurstöðu fyrri dómstiga.

Landsvirkjun endurgreiðir viðskiptavinum sínum í dag þá upphæð sem rukkuð var á tímabilinu sem innmötunargjaldið var innheimt. Viðskiptavinum okkar hefur verið tilkynnt um endurgreiðsluna og jafnframt að hér sé einungis um að ræða höfuðstól, því enn er verið að semja um vaxtagreiðslur.

Gjaldinu mótmælt frá upphafi

Landsvirkjun mótmælti gjaldtöku Landsnets frá upphafi og taldi að ekki væru lagalegar forsendur fyrir henni. Í samningum við stórnotendur er almennt kveðið á um að raforkukaupandi beri ábyrgð á greiðslu flutningsgjalda. Með tilkomu innmötunargjalds færðist hluti flutningskostnaðar frá stórnotendum til Landsvirkjunar. Gjaldskrá flutningsgjalda hefur nú verið færð aftur til fyrra horfs,“ segir í tilkynningu frá Landsvirkjun.

Hinir fimm raforkuframleiðendurnir sem um ræðir eru HS Orka, Orka náttúrunnar, Orkusalan, Fallorka, Orkubú Vestfjarða.


Tengdar fréttir

Landsvirkjun vann og neytendur borga brúsann

Hæstiréttur hefur dæmt innheimtu Landsnets á svokölluðu aflgjaldi af framleiðendum raforku ólögmæta. Sama niðurstaða á neðri dómstigum gerði það að verkum að Landsnet færði aflgjaldið yfir á notendur raforku, neytendur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×