Innlent

Brúin yfir Ferjukotssíki fallin

Árni Sæberg skrifar
Þessi mynd er frá því áður en brúin féll alveg.
Þessi mynd er frá því áður en brúin féll alveg. Skjáskot/Heiða Dís Fjeldsted

Brúin yfir Ferjukotssíki í Borgarfirði er fallin í talsverðum vatnavöxtum. Brúin var reist árið 2023 í kjölfar þess að eldri brú skemmdist í vatnavöxtum. Heimamenn á svæðinu gagnrýndu smíði brúarinnar á sínum tíma og töldu víst að hún myndi ekki endast.

Þetta segir Heiða Dís Fjeldsted, reiðkennari og íbúi í Ferjukoti, í samtali við Vísi. Hún segir að brúin hafi fallið með talsverðum krafti í morgun. Á vef Vegagerðarinnar segir að vatn flæði yfir Hvítárvallaveg og brúin sé ófær á meðan á vatnavöxtunum stendur.

Tæplega tveggja ára bráðabirgðabrú

Í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar frá 9. júní árið 2023 sagði bráðabirgðabrú yfir Ferjukotssíki yrði að öllum líkindum opnuð í lok þess mánaðar.

Forsagan væri sú að styttri brúin á Ferjukotssíki í Borgarfirði hafi skemmst í vatnavöxtunum í Hvítá í mars 2023. Hún hafi verið talin hættuleg og því ákveðið að rífa hana og fylla í skarðið. Lengri brúin, á öðrum ál Ferjukotssíkis, hafi einnig verið illa farin og því ákveðið að rífa hana og byggja bráðabirgðabrú.

Lengi erfiðar í viðhaldi

Síkisbrýrnar væru á gamla þjóðveginum um Hvítá og Ferjukot sem haldist hafi nánast óbreyttur frá því um 1950 en umferð um veginn hafi minnkað mikið eftir tilkomu Borgarfjarðarbrúarinnar. Þó væri mikilvægt að halda þessari leið opinni þar sem hún væri tenging innan sveitar og að gömlu fallegu bogabrúnni yfir Hvítá.

„Síkisbrýrnar hafa lengi verið erfiðar í viðhaldi þar sem vegurinn að brúnum og milli þeirra hefur sigið töluvert. Í raun er nauðsynlegt að byggja nýja brú á þessum stað en ekki er til fjárveiting fyrir því enn.“

Því hafi verið ákveðið að reisa einbreiða bráðabirgðabrú úr stáli, með timburgólfi og á timburstaurum.

Heiða Dís segir að heimamenn hafi mótmælt þeirri ákvörðun hressilega á sínum tíma, enda hafi þeir vitað að brúin myndi ekki þola tíða vatnavexti í Hvítánni.

Rigna hafi farið af alvöru í gær og þau í Ferjukoti séu að verða umflotin. Vatnavextirnir séu þó alls ekki þeir mestu sem hún hafi séð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×