Viðskipti innlent

Fyrr­verandi ráð­herra til ráð­gjafar­fyrir­tækis

Árni Sæberg skrifar
Katrín Júlíusdóttir er gengin til liðs við Athygli.
Katrín Júlíusdóttir er gengin til liðs við Athygli. Athygli

Katrín Júlíusdóttir hefur gengið til liðs við ráðgjafarfyrirtækið Athygli þar sem hún mun sinna ráðgjöf tengdri stjórnsýslu, stefnumótun, samskipta-og kynningarmálum.

Í fréttatilkynningu um ráðninguna segir að Katrín hafi undanfarið unnið að sérverkefnum í ráðgjöf sem og ritstörfum. Hún hafi verið iðnaðar-, fjármála- og efnahagsráðherra árin 2009 til 2013 og setið á Alþingi fyrir Samfylkinguna frá 2003 til 2016. Katrín hafi verið framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja i fjármálaþjónustu frá 2016 til 2022.

Hún hafi útskrifast með MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík árið 2014. Hún hafi þegar hafið störf á Athygli.

„Við erum mjõg spennt fyrir því að fá Katrínu til liðs við okkur hjá Athygli.

Áratuga reynsla hennar af íslensku stjórnkerfi og atvinnulífi mun vera frábær viðbót við ráðgjafarteymi okkar. Ég hef sjálfur reynslu af því að vinna með henni og hef séð það í nálægð hversu gríðarlega öflug hún er,“ er haft eftir Kolbeini Marteinssyni, framkvæmdastjóra Athygli.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×