Innlent

Fíkni­efna­notkun talin megin­or­sök banaslyss í Lækjar­götu

Kjartan Kjartansson skrifar
Afstaða farartækjanna sést á þessari mynd úr öryggismyndavél á horni Vonarstrætis og Lækjargötu.
Afstaða farartækjanna sést á þessari mynd úr öryggismyndavél á horni Vonarstrætis og Lækjargötu. Rannsóknarnefnd samgönguslysa

Ökumaður sendibíls sem lést í árekstri við lyftara í Lækjargötu árið 2023 var óhæfur til aksturs vegna áhrifa örvandi fíkniefnis. Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur það meginorsök slyssins. Þá átti ökumaður lyftarans ekki að aka honum eftir neyslu á slævandi lyfi.

Áreksturinn varð á gatnamótum Lækjargötu og Vonarstrætis um miðjan dag 13. september árið 2023. Sendibílnum var ekið þvert fyrir svonefndan skotbómulyftara en gafflar hans gengu inn í farþegarými sendibílsins. Ökumaður sendibílsins, sem var 37 ára gamall.

Lyftaranum var ekið eftir vinstri akrein Lækjargötu í suðvestur en samhliða honum var strætisvagn sem beygði til hægri inn í Vonarstræti. Sendibifreiðinni var ekið frá Vonarstræti yfir vestari akreinar Lækjargötu og í veg fyrir lyftarann.

Mikið magn örvandi fíkniefnis fannst við blóðrannsókn á manninum sem lést og var hann óhæfur til aksturs vegna þess, að því er kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa sem telur það meginorsök slyssins. 

Blóðrannsókn á ökumanni lyftarans leiddi í ljós slævandi lyf í lækningalegum skammti. Í leiðbeiningum lyfsins sagði að ekki mætti aka eða stjórna vélum þegar það væri notað þar sem það gæti skert athygli og viðbragðsflýti.

Á meðal annarra orsaka slyssins sem rannsóknarnefndin nefnir er að gafflar lyftarans lyftust hratt upp að framan rétt fyrir áreksturinn. Nefndin ályktaði að ökumaður lyftarans hefði óafvitandi ýtt stýripinnar bómunnar þannig að gafllarnir lyftust upp fyrir og í árekstrinum.

Þá átti lyftarinn ekki að vera í akstri í almennri umferð heldur flutt á milli vinnustaða með öðrum hætti. Eins hafði áhrif að strætisvagninn birgði ökumanni sendibílsins sýn gagnvart lyftaranum og útsýni ökumanns lyftarans að Vonarstræti var líklega einnig skert.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×