Sport

Annað enskt barn heims­meistari

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mia Brookes hefur náð miklum árangri á snjóbrettasviðinu þrátt fyrir að hún verði ekki átján ára fyrr en 19. janúar.
Mia Brookes hefur náð miklum árangri á snjóbrettasviðinu þrátt fyrir að hún verði ekki átján ára fyrr en 19. janúar. getty/Fred Lee

Mia Brookes varð annar enski táningurinn til að verða heimsmeistari í sinni grein um helgina.

Sem kunnugt er varð hinn sautján ára Luke Littler heimsmeistari í pílukasti á föstudaginn. Brookes er aðeins tveimur dögum eldri en Littler en hún varð heimsmeistari á snjóbretti í gær.

Brookes vann sinn annan sigur á HM í röð er hún varð hlutskörpust í Klagenfurt í Austurríki í gær. Hún hafði einnig unnið sigur í Peking í desember.

Brookes var í 3. sæti eftir fyrsta stökkið en vann sig svo upp í 1. sætið og hélt því keppnina á enda. Hún fékk samtals 184.125 í einkunn, tveimur meira en Mari Fukada frá Japan.

Í mars 2023 varð Brookes yngsti heimsmeistari sögunnar í brettafimi, þá aðeins sextán ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×