Martin glímir við meiðsli í hásin Sindri Sverrisson skrifar 5. janúar 2025 15:14 Martin Hermannsson var áhorfandi á leiknum við Monaco í Berlín síðastliðinn fimmtudag, vegna hásinarmeiðsla. Getty/Moritz Eden Martin Hermannsson er ekki með Alba Berlín í dag í leiknum við topplið Bayern München, í efstu deild þýska körfuboltans.
Martin er meiddur í hásin, samkvæmt Twitter-síðu Berlínarliðsins, en hann var sömuleiðis ekki með í viðureigninni við Monaco á fimmtudaginn, í 105-90 tapi í Euroleague. Síðasti leikur Martins var á gamlársdag þegar Alba Berlín tapaði 96-85 fyrir Rostock Seawolves í þýsku deildinni, og var hann þá stigahæstur með 25 stig. Martin meiddist snemma í nóvember og var þá óttast að um alvarleg meiðsli væri að ræða, og að hann hefði slitið hásin. Svo reyndist þó ekki vera og byrjaði Martin aftur að spila í desember. Meiðsli hafa gert honum erfitt fyrir á síðustu árum því Martin sleit krossband í hné árið 2022, þá sem leikmaður Valencia, og var frá keppni í tæpt ár, og hann varð svo að fara í aðra aðgerð á sama hné haustið 2023 en var þá frá keppni í mun skemmri tíma. Hann tognaði jafnframt í læri fyrir úrslitaeinvígið við Bayern München í byrjun síðasta sumars og missti af einvíginu. Alba Berlín veitir ekki af kröftum Martins en liðið er í 15. sæti þýsku deildarinnar með fjóra sigraog átta töp, fyrir leikinn við Bayern í dag.
Þýski körfuboltinn Mest lesið Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fótbolti HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Fótbolti Fleiri fréttir Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Sjá meira