Innlent

Hug­takið þjóðar­morð sé lagatæknileg skil­greining

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Þorgerður Katrín segir Íslendinga þurfa tala skýrari röddu varðandi mál Palestínu.
Þorgerður Katrín segir Íslendinga þurfa tala skýrari röddu varðandi mál Palestínu. Vísir/Vilhelm

Utanríkisráðherra segir hugtakið þjóðarmorð vera lagatæknilega skilgreiningu. Atburðirnir á Gasa séu hræðilegir en hún vill að Ísland tali skýrari röddu en hefur verið gert.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, tjáði sig um málefni Ísraels og Palestínu í Kryddsíldinni sem sýnd var á Stöð 2 á gamlársdag. 

„Við getum farið í sama lagatæknilegu skilgreiningu hvort sem að það sé þjóðarmorð, ofbeldi eða hryðjuverk. Ástandið á Gasa er algjörlega óþolandi og alþjóðasamfélagið verður að tala skýrar og meira. Það er mín skoðun,“ sagði Þorgerður Katrín.

Hlusta má á svar Þorgerðar í Kryddsíldinni í spilaranum hér fyrir neðan.

Hún ítrekar að atburðirnir á Gasa sé hryllilegir.

„Við vitum að allur grunnurinn að þessu er hryðjuverkaárás Hamas 7. október fyrir rúmu ári síðan. En það hvernig Ísraelsmenn hafa brugðist við, hvernig þeir hafa með yfirgengilegum, hræðilegum hætti ráðist inn á Gasa og farið markvisst núna að spítölum, að innviðum...“

Þverpólitísk samstaða Alþingismanna

„Ég fagna sérstaklega að þingið hérna heima náði þverpólitískt, og þá voru átta flokkar, að sameinast um ákveðna yfirlýsingu þegar kemur að þessu og fordæmingu á framferði Ísraelsmanna þegar kemur að þessum átökum fyrir botni Miðjarðarhafs,“ segir Þorgerður. 

Hún vill að Íslandi tali skýrari röddu en áður og þurfi að veita fólki í neyð, líkt og þeim sem búa á Gasa, hjálp og aðstoð.

„Við þurfum líka, við Íslendingar höfum tekið undir það og síðasti utanríkisráðherra gerði það, að við verðum að mótmæla því þegar Ísrael er að gera allt til þess að stoppa meðal annars hjálparstofnun eins og UNRWA og fleira,“ segir Þorgerður.

Þá vilji hún fylgja stefnu Norðurlanda en sú stefna er ekki skýr þar sem ekki er einhugur með allra Norðurlandanna. Norðmenn hafi verið ákveðnastir þegar komi að málefnum Palestínu. Þá hafi alþjóðasamfélagið í heild brugðist.

„Mér finnst alþjóðasamfélagið að einhverju leyti hafa brugðist hvað það varðar, alveg eins og það hefur brugðist líka við það að taka á ýmsum öðrum þáttum og rótum þessa vanda.“

Lagatæknileg skilgreining

„Eins og ég segi, mín skoðun er að horfa á þetta, ef að þjóðarmorð er það [hugtak] að lýsa yfir hryllilegum aðstæðum, gríðarlegu ofbeldi þá getur fólk talað um að það sé þjóðarmorð. Það er bara lagatæknileg skilgreining á alþjóðavísu sem þú þarft að falla undir. Ég veit bara ekki hvort það falli undir,“ segir Þorgerður.

„Þetta er hræðilegt og við getum notað hvaða orð sem er.“

Að neðan má sjá Kryddsíld í heild sinni.


Tengdar fréttir

„Ég þekki mann sem að móðgast yfir dagskránni á RÚV“

Einar Lövdahl steig á stokk í Kryddsíld Stöðvar 2 þetta árið og flutti nýtt lag sitt Um mann sem móðgast. Árið var gjöfult hjá Einari sem gaf út Gegnumtrekk, fyrstu skáldsöguna sína, og svo lagið sem fékk áhorfendur Kryddsíldar til að brosa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×