Spilar báða leikina við Keflavík með bann hangandi yfir sér Sindri Sverrisson skrifar 5. desember 2024 12:32 Adomas Drungilas var foxillur út í dómara í leiknum við Álftanes á föstudagskvöld, og var vísað upp úr Síkinu. Stöð 2 Sport Adomas Drungilas, Litháinn öflugi í toppliði Tindastóls í Bónus-deild karla í körfubolta, er að öllum líkindum á leið í leikbann. Það verður þó ekki strax og nær hann að spila tvo mikilvæga leiki við Keflavík áður en að því kemur.
Drungilas var rekinn umsvifalaust úr húsi á Sauðárkróki síðasta föstudag, í sigrinum gegn Álftanesi, eftir að hann hellti sér yfir einn af dómurum leiksins, eins og sjá má hér að neðan. Fjallað var um hegðun hans í síðasta þætti Körfuboltakvölds þar sem Pavel Ermolinskij, fyrrverandi þjálfari hans, sagði meðal annars: „Hann bara missti sig. Ekkert í fyrsta skipti og mögulega ekki í það síðasta. Þetta er einhver hlið á honum sem er til, og við sem þekkjum hann og höfum starfað með honum við tökum þessu bara, því það er önnur hlið á honum sem skiptir mikið meira máli en þetta.“ Klippa: Körfuboltakvöld - Drungilas rekinn úr húsi Aga- og úrskurðanefnd KKÍ úrskurðaði ekki í málinu á fundi sínum á þriðjudag og því verður bið á því að Drungilas fari í bann, þó að fastlega megi búast við því að hann fari í bann og að spurningin sé aðeins hve langt það verði. Töf á úrskurði kemur sér ekki vel fyrir bikarmeistara Keflavíkur sem eru mótherjar Tindastóls í næstu tveimur leikjum. Liðin mætast á morgun í stórleik í Bónus-deildinni og svo aftur í VÍS-bikarnum á mánudagskvöld, og mun Drungilas geta spilað báða þessa leiki áður en niðurstaða fæst í hans máli.
Bónus-deild karla Tindastóll Mest lesið Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti Fleiri fréttir Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Baulað á LeBron og félaga en snéru taflinu við Starfsfólki og þjálfurum Knicks finnst það vera svikið Trump sakar LeBron um að sýna Bandaríkjunum vanvirðingu „Kærkominn“ og „lífsnauðsynlegur“ sigur „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Sjá meira