„Kemur ekki til greina“ að lækka eiginfjárkröfur Árni Sæberg og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 4. desember 2024 12:04 Ásgeir Jónsson er seðlabankastjóri og formaður fjármálastöðugleikanefndar. Vísir/Einar Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka kerfisáhættuauka en hækka eiginfjárauka fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki á móti. Með þessu lækkar eiginfjárkrafa á minni innlánastofnanir, til að mynda Indó og Kviku, en stendur í stað fyrir stóru viðskiptabankana þrjá. Seðlabankastjóri segir ekki koma til greina að lækka eiginfjárkröfur á stóru bankana.
Þetta var meðal þess sem kemur fram í yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans sem birt var klukkan 8:30. Kerfisáhætta minnkað Nefndin ákvað að lækka gildi kerfisáhættuaukans úr 3 prósentum í 2 prósent. Þessi lækkun byggir á því mati nefndarinnar að kerfisáhætta hafi minnkað frá því að gildi aukans var fyrst ákveðið árið 2016. Í yfirlýsingunni segir að ljóst sé að viðnámsþróttur fjármálakerfisins hafi aukist á síðustu árum, sem birtist meðal annars í minni breytileika helstu hagstærða þrátt fyrir að ýmis áföll hafi dunið yfir. Þá hafi ný þjóðhagsvarúðartæki sannað gildi sitt og umgjörð í kringum viðhald fjármálastöðugleika sé nú heilsteyptari en áður. Á vef Seðlabankans segir að eiginfjáraukar séu eiginfjárkröfur sem hægt er að gera til fjármálafyrirtækja umfram lágmarks eiginfjárkröfur [8 prósent]. Eiginfjáraukum sé ætlað að vinna gegn því vandamáli að þegar áföll verða í hagkerfinu og væntingar um tap á eignum fjármálafyrirtækja aukast, er hætt við að þau dragi á sama tíma um of úr framboði lánsfjár til að gæta að eigin gjaldfærni. Eiginfjáraukarnir séu breytilegar og sveigjanlegar eiginfjárkröfur og afleiðingar og viðurlög gegn brotum á þeim séu vægari en þegar lágmarkskrafan um eigið fé er rofin. Þetta sé hugsað til að fjármálafyrirtækjum auðnist að jafna út sveiflur í lánsfjárframboði þrátt fyrir að áföll verði í hagkerfinu. Þeir eiginfjáraukar sem hafi verið innleiddir hér á landi eru kerfisáhættuauki, eiginfjárauki vegna kerfislegs mikilvægis, sveiflujöfnunarauki og verndunarauki. Krafan á stóru bankana stendur í stað Nefndin ákvað aftur á móti að hækka eiginfjárauka vegna kerfislegs mikilvægis um sömu prósentutölu, úr 2 prósentum í 3. Í yfirlýsingu nefndarinnar segir að hún hafi lokið mati sínu á kerfislegu mikilvægi bankanna og það sé það sama og áður, Arion banki, Íslandsbanki og Landsbankinn séu kerfislega mikilvægir. „Þessi hækkun miðar að því að fanga betur þá áhættu sem að hagkerfinu stafar vegna stærðar og umfangs kerfislega mikilvægra fjármálafyrirtækja. Lækkun kerfisáhættuauka og hækkun eiginfjárauka fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki hefur í för með sér að heildareiginfjárkrafa á kerfislega mikilvægu bankana þrjá verður nánast óbreytt. Hins vegar mun eiginfjárkrafan lækka á smærri innlánsstofnanir sem ekki teljast kerfislega mikilvægar,“ segir í yfirlýsingunni. Kerfið stöðugra og áhættan minni Þeir Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, buðu til fundar og gerðu grein fyrir yfirlýsingunni í morgun. Hann má sjá í spilaranum hér að neðan: Erna Björg Sverrisdóttir, aðalhagfræðingur Arion banka, mætti á fundinn og spurði þá Ásgeir og Tómas spjörunum úr. Fyrst fór hún fram á rökstuðning fyrir ákvörðun um breytingu á eiginfjáraukunum, sem hún sagði óskýra í yfirlýsingunni. Auk þess að vísa í ítarleg gögn á vef Seðlabankans sagði Ásgeir að um tvo ólíka eiginfjárauka að ræða, sem auðvelt sé að rugla saman. Kerfisáhættuaukinn leggist á allar lánastofnanir óháð stærð. Honum hafi verið komið á árið 2016 vegna mikillar áhættu í kerfinu og hafi verið í hæsta mögulega gildi, 3 prósent, síðan þá. Fjármálastöðugleikanefnd meti stöðuna svo í dag að áhætta í kerfinu hafi minnkað og það sé stöðgra en áður. Gjaldeyrisforði Seðlabankas sé til að mynda ekki skuldsettur lengur og skuldir bæði heimila og fyrirtækja hafi lækkað verulega sem hlutfall af ráðstöfunartekjum. Því hafi verið talið unnt að lækka kerfisáhættuaukann um eitt prósentustig. Sanngjarnt að stóru bankarnir beri áhættuaukann Ákvörðun um að hækka eiginfjáraukann á kerfislega mikilvæg lánafyrirtæki hafi að einhverju leyti verið tekin að erlendri fyrirmynd. „Við erum með þrjá banka sem eru mjög stórir. Úti er það þannig að kerfislegu mikilvægi er raðað upp í stig, frá eitt upp í þrjú, og það er alveg klárt að bankarnir okkar, sem eru algjörlega miðlægir í okkar kerfi, eru náttúrulega í hæsta stigi. Svo er það líka að einhverju leyti sanngjarnt að þeir aðilar, sem hafa burði til að raska fjármálastöðugleika, eins og þeir aðilar sem eru kerfislega mikilvægir, að þeir borgi fyrir þá áhættu.“ Þá sé sá munur á aukunum að kerfisáhættuauki leggist ekki á erlendar skuldbindingar en áhættuauki vegna kerfislegs mikilvægis geri það. „Þetta hefur líka aðeins þýðingu. Samkvæmt þessu verður aðeins dýrara að standa í erlendri starfssemi. Nettóáhrifin af þessum breytingum eru að smærri fyrirtækin fá lækkun á eiginfjárkröfum.“ Kerfislega mikilvægustu bankar í Evrópu Tómas greip orðið og benti á að lögum um fjármálafyrirtæki hafi verið breytt fyrir tveimur árum og hámark eiginfjárauka vegna kerfislægs mikilvægis hafi verið hækkað úr tveimur prósentum í þrjú. Lög um fjármálafyrirtæki séu að evrópskri fyrirmynd. Tómas Brynjólfsson var skipaður varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika í sumar.Vísir/Einar „Ég held að það sé óhætt að segja að það er óvíða í Evrópu sem það er meiri samþjöppun á fjármálamarkaði en hér, þar sem bankar eru jafn kerfislega mikilvægir. Þannig að ef evrópulöggjöfin segir að hámarkið sé þrjú prósent og við, eða íslensku bankarnir þrír, þeir fylla í raun og veru rammann, eru eins kerfislega mikilvægir og bankar verða í Evrópu, þá kallar það á í okkar huga að þeir fái hæsta gildið sem mögulegt er.“ Hátt eigið fé grundvöllur fjármálakerfisins Erna Björg benti þá á umræðu um svokallað Íslandsálag, hærri eiginfjárkröfur á íslenska banka en þekkist í alþjóðlegu samhengi, og spurði hvort von væri á að þær lækkuðu í bráð. Ásgeir sagði að hátt eigið fé bankanna væri grundvöllur fjármálakerfisins hér á landi og raunar væru aðrar þjóðir að hækka eiginfjárkröfur sínar og nálgast þær sem eru hér. „Þannig að það kemur ekki til greina af hálfu Seðlabankans að fara að auka samkeppnishæfni íslenska fjármálakerfisins með því að taka niður eigið féð eða minnka þær eiginfjárkröfur sem hér eru.“ Staða þjóðarbúsins tiltölulega góð Ásgeir segir í samtali við fréttastofu að staða þjóðarbúsins sé nokkuð góð. „Hún er tiltölulega góð. Við erum að sjá heimili og fyrirtækin eru tiltölulega lítið skuldsett. Þá er eiginfjárstaða heimila nokkuð góð,“ segir hann. Ásgeir telur þó að hátt raunvaxtastig samhliða hægari vexti efnahagsumsvifa geti skapað áskoranir fyrir fjármálakerfið á næstu misserum. Þá séu ýmsar blikur á lofti í alþjóðlegu umhverfi sem geti haft neikvæð áhrif. „Við höfum áhyggjur af tollastríðum sem gætu verið yfirvofandi eftir yfirlýsingar verðandi Bandaríkaforseta. Þá hafa stríðsátök áhrif á lítið hagkerfið eins og okkar,“ segir Ásgeir.
Seðlabankinn Efnahagsmál Landsbankinn Íslandsbanki Arion banki Fjármálafyrirtæki Mest lesið Hætti korteri eftir peppfund með Möltufólkinu Viðskipti innlent Stefna á að hefja starfsemi á Möltu innan tíu vikna Viðskipti innlent Viðkvæm staða í björgunaraðgerðum Play Europe Viðskipti innlent Isavia gefur strandaglópum engin grið Viðskipti innlent „Við munum gæta réttar kröfuhafa í hvívetna“ Viðskipti innlent Búið að greiða laun og barnabætur Viðskipti innlent Gjörbreyttar kröfur og vinna ekki lengur aðeins til að hafa í sig og á Atvinnulíf Horfa fram á tugmilljarða samdrátt og bíða í ofvæni eftir loðnufréttum Viðskipti innlent Hvetur stjórnvöld til að veita ferðaskrifstofum lán eins og í Covid Viðskipti innlent Norðlensk framleiðsla sem er að slá í gegn á Íslandi Samstarf Fleiri fréttir Múlakaffi nýtir farþegamiðstöðina yfir veturinn „Við munum gæta réttar kröfuhafa í hvívetna“ Viðkvæm staða í björgunaraðgerðum Play Europe Horfa fram á tugmilljarða samdrátt og bíða í ofvæni eftir loðnufréttum Hætti korteri eftir peppfund með Möltufólkinu Isavia gefur strandaglópum engin grið Ásgeir og Darri til Landslaga Sahara og Olís tilnefnd til tvennra alþjóðlegra verðlauna Hvetur stjórnvöld til að veita ferðaskrifstofum lán eins og í Covid Búið að greiða laun og barnabætur Stefna á að hefja starfsemi á Möltu innan tíu vikna Snaps teygir anga sína út á Hlemm „Það er svo langt síðan að við höfðum ekki trú á Play“ Arnar Þór og Unnur Lilja skipta búi Play Bændaferðir færa sig í skemmtiferðasiglingar Fallið frá kröfum um neyðarfjarskipti á hálendinu Play með sex prósent flugsæta til og frá landinu Hrun í makríl og kolmunna Fall Play áfall en að einhverju leyti fyrirséð Segir ekki honum að kenna að Play hafi farið á hausinn Eðlilegt ef farið verður yfir eftirlit með flugfélögum Höggið á íslenska ferðaþjónustu ætti að vera takmarkað Þjóðarskútan sé „vel í stakk búin til að sigla milli skers og báru í úfnum sjó“ Gjaldþrotaskiptabeiðni Play tekin fyrir í héraðsdómi Atvinnuleysi 5,3 prósent í ágúst Kalla ráðherra og forstjóra Samgöngustofu fyrir samgöngunefnd Hækkun flugfargjalda muni skila sér í meiri verðbólgu Leik lokið hjá Play „Skrifast ekki á okkur að það hafi farið eins og er farið“ Icelandair geti ekki svarað fyrir orðræðuna Sjá meira