Viðskipti innlent

Spá því að nefndin lækki stýrivexti dug­lega

Árni Sæberg skrifar
Landsbankinn telur stýrivexti á nokkuð hraðri niðurleið.
Landsbankinn telur stýrivexti á nokkuð hraðri niðurleið. Vísir/Vilhelm

Greiningardeild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd lækki stýrivexti um hálft prósentustig þegar hún kemur saman síðar í mánuðinum. Gangi spáin eftir verða stýrivextir þeir lægstu síðan í maí í fyrra.

Í grein þess efnis á vef Landsbankans segir að verðbólga hafi hjaðnað nokkuð kröftuglega á síðustu mánuðum og greiningardeildin spái því að hún mælist 4,5 prósent í nóvember. 

Loks megi greina merki um hægari gang í neyslu heimilanna og íbúðaverð virðist vera á minna flugi en áður. Þá virðist eftirspurn eftir vinnuafli hafa minnkað auk þess sem hægt hafi á launahækkunum.  Peningalegt aðhald hafi aukist statt og stöðugt og landsframleiðsla gæti orðið lítillega minni á þessu ári en því síðasta.

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands kemur saman í næstu viku og kynnir vaxtaákvörðun miðvikudaginn 20. nóvember. Nefndin hóf vaxtalækkunarferli í október með varfærinni lækkun um 0,25 prósentur.

Á vef Landsbankans segir að greiningardeildin telji að í ljósi hjaðnandi verðbólgu og ýmissa merkja um að eftirspurn sé á undanhaldi haldi nefndin áfram að lækka vexti og tilkynni um 0,5 prósentustiga lækkun í næstu viku. Stýrivextir færu þá niður í 8,50 prósent. Stýrivextir voru síðast lægri en 8,75 prósent í maí í fyrra, þegar þeir voru 7,5 prósent.

„Við teljum að nefndin taki til greina átök á opinberum vinnumarkaði og veki athygli á því að óvissa á vinnumarkaði og óhóflegar launahækkanir gætu hægt á vaxtalækkunarferlinu.“


Tengdar fréttir

Spá hressilegri vaxtalækkun

Greiningadeild Íslandsbanka spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands muni lækka stýrivexti sína um hálft prósentustig þegar hún kemur saman síðar í mánuðinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×