Fótbolti

Hlín fór á kostum og finnur fyrir á­huga: „Hef ekki tekið á­kvörðun“

Aron Guðmundsson skrifar
Hlín Eiríksdóttir, landsliðskona og leikmaður Kristianstad
Hlín Eiríksdóttir, landsliðskona og leikmaður Kristianstad Mynd: Kristianstad

Hlín Eiríks­dóttir átti skínandi tíma­bil með Kristian­stad í Svíþjóð og er til­nefnd sem sóknar­maður ársins í sænsku deildinni. Hún finnur fyrir áhuga frá öðrum liðum á kröftum sínum en gæti vel hugsað sér að vera hjá Ís­lendingaliðinu lengur.

Kristian­stad endaði í fjórða sæti sænsku deildarinnar á nýafstöðnu tímabili og jafnaði stiga­met sitt í deildinni upp á 52 stig en fjórða sætið nægði þó ekki til að upp­fylla mark­mið liðsins.

„Ég er mjög ánægð með margt á tíma­bilinu. Það er þó enn ekki hægt að segja að við höfum náð góðum árangri sem lið. Við vorum með mark­mið um að ná ofar í töflunni. Topp þrjú sætin gefa Evrópusæti, við misstum af því. En ég er samt mjög sátt með spila­mennskuna okkar í lang­flestum leikjum. Það voru nokkrir leikir, fyrst og fremst beint eftir sumar­fríið, þar sem að við vorum að hiksta. Töpuðum dýr­mætum stigum þar en annars myndi ég segja að við höfum átt flott tíma­bil.“

„Okkur var ekki spáð svona ofar­lega en við sem lið vorum búin að horfa á þetta þriðja sæti og við áttum raun­hæfa mögu­leika á því mjög lengi. Það er smá svekkjandi. En við sýndum samt spila­mennsku sem fór fram úr væntingum hjá utan­aðkomandi aðilum.“

„Mjög mikill heiður“

Sjálf átti Hlín skínandi tíma­bil með fimmtán skoruð mörk og aðeins einu marki frá gull­skó deildarinnar. Tvö af hennar mörkum eru til­nefnd í flokknum flottasta mark tíma­bilsins. Annað markið kom á úti­velli gegn Hammar­by en hitt á heima­velli gegn Djur­gar­d­en en mörkin má sjá hér fyrir neðan. 

Þá er Hlín sjálf til­nefnd sem besti sóknar­maður tíma­bilsins sem hún segir mikinn heiður en stóru orðin eru ekki spöruð í hennar garð í um­sögn sem fylgdi til­nefningunni þar sem segir meðal annars að Hlín hafi borið lið Kristian­stad á herðum sér allt tíma­bilið..

„Þetta er mjög mikill heiður. Að vera til­nefnd til verð­launa í þessari sterku deild þýðir að maður er að gera eitt­hvað rétt. Þetta er eitt­hvað sem ég hef verið til­nefnd til áður sem sýnir einnig að ég er að taka skref fram á við. Al­gjör­lega mjög mikill heiður. Bæði fyrir mig en auðvitað einnig viður­kenning til liðsins og þjálfara minna einnig. Ég er mjög stolt af þessu.“

En hvort markið er meira í upp­áhaldi?

„Hammar­by leikirnir á úti­velli , bæði í ár sem og í fyrra, eru eftir­minni­legustu augna­blikin síðan að ég kom til Kristian­stad. Ég held að Hammar­by markið sé upp­áhalds en Djur­gar­d­en markið var líka flott. Bæði mörk góð.“

Hlín fór á kostum með Kristianstad á nýafstöðnu tímabiliMynd: Kristianstad

Raðað inn mörkum

Þetta var þriðja tíma­bilið í röð sem að Hlín setur tíu eða fleiri mörk á einu og sama tíma­bilinu í sænsku úr­vals­deildinni. Tíma­bilið í ár það besta hingað til.

„Nú hef ég spilað fjögur ár í Svíþjóð og í ár var ég klár­lega að spila í besta liðinu síðan að ég kom hingað út. Ég hef svo sjálf verið að bæta mig og fæ mjög stórt hlut­verk í liðinu sem gerir það að verkum að ég næ að gera „stig“ eins og maður segir í Svíþjóð. Sem­sagt skora mörk og gefa stoð­sendingar. Ég held að það séu margir mis­munandi þættir sem spila inn í þetta góða gengi. En fyrst og fremst höfum við bara verið að spila góðan sóknar­bolta sem lið.

Ég spilaði mest megnis á kantinum í fyrra líka en þá vorum við að spila, sér­stak­lega seinni hluta þess tíma­bils, án níu. Vorum ekki með einn eigin­legan fram­herja upp á toppi. Þess í stað vorum við tvær sem spiluðum á köntunum að spila sem fremstu menn. Núna höfum við verið að spila með fram­herja og ég hef verið úti á vinstri kanti.“

Engin meining á bak við þetta

Hlín er ekki eini Ís­lendingurinn á mála hjá Kristian­stad en þar er einnig að finna lands­liðs­konurnar Guðnýju Árna­dóttur og Kötlu Tryggva­dóttur og hafa þær slegið saman á létta strengi í gegnum tíðina. Eftir loka­leik Kristian­stad í sænsku deildinni á dögunum birtist mynda­sería á sam­félags­miðlum félagsins þar sem að sjá mátti ís­lensku leik­mennina í góðum gír og leit út fyrir að Guðný væri að biðja Hlínar.

„Ég og Guðný erum bara trúlofaðar núna,“ segir Hlín og hlær að­spurð um það hvað hafi verið þarna á seiði. „Nei við fengum sem sagt brons­medalíur eftir síðasta leik á laugar­daginn og vorum bara að skemmta okkur aðeins. Við erum mjög mikið saman. Ég, Guðný og Katla og vissu­lega eru aðrir Ís­lendingar í kringum okkur líka. Beta og fjöl­skylda sem og ís­lenska sjúkraþjálfara og hennar fjöl­skyldu. Við eyðum mjög miklum tíma saman og erum bara eitt­hvað að spauga. Það er engin meining á bak við þetta.“

„Auka fjölskylda hér úti“

Hlín fer fögrum orðum um Ís­lendinga­sam­félagið í Kristian­stad.

„Þegar að ég fór fyrst út til Svíþjóðar á sínum tíma var ég eini Ís­lendingurinn, sem ég þekkti, í bænum þar sem að ég bjó. Það hefur sýna kosti líka því þá er manni þvingað í það að læra tungumálið og annað. En við náum ótrú­lega vel saman allir Ís­lendingarnir hér í Kristian­stad og það eru al­gjör forréttindi. Eitt­hvað sem er alls ekki sjálf­sagt þegar að maður fer er­lendis í at­vinnu­mennsku. Að vera með fullt af Ís­lendingum í kringum sig. Bæði í liðinu sem og í kringum liðið. Það gerir manni það auðveldara fyrir að líða eins og heima hjá sér þó svo að maður sé ekki í sínu heima­landi. Ég er bara með auka fjöl­skyldu hér úti. Okkur líður mjög vel saman. Það er geggjað og ég er mjög þakk­lát fyrir þau.“

Skoðar möguleikana

Góðri frammistöðu fylgir aukinn áhugi og fyrir honum finnur Hlín og á tíma­punkti þar sem að núverandi samningur hennar og Kristian­stad er að renna sitt skeið. Hún íhugar nú stöðu sína.

„Við erum að skoða hvað framtíðin ber í skauti sér. Ég er í viðræðum við Kristian­stad en það hefur ekkert þannig komið út úr þeim viðræðum enn þá. Ég veit því ekki hvar ég verð á næsta tíma­bili. En það kemur í ljós. Ég er alla­vegana mjög sátt hjá Kristian­stad akkúrat núna og gæti al­gjör­lega hugsað mér að vera hér áfram.“

Hlín samdi á sínum tíma út tímabilið 2024 við Kristianstadkdff.nu

Finnurðu fyrir því að frammistaða þín á tíma­bilinu hafi vakið áhuga á þér annars staðar frá?

„Já ég finn alveg fyrir áhuga. Það eru ein­hver lið búin að sýna mér áhuga sem er mjög gaman. Þegar að maður spilar í deildinni þá byrja lið innan deildarinnar að sýna manni áhuga þegar að þau sjá mann. Það er alveg áhugi til staðar en ég hef ekki tekið ákvörðun um það hvað ég muni gera í fram­haldinu. Er bara skoða mína mögu­leika þessa dagana. Tíma­bilinu var náttúru­lega bara að ljúka.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×