Lífið

Við­kvæmur drengur sem var á brjósti til fimm ára aldurs og farinn að reykja

Stefán Árni Pálsson skrifar
Jón var eitt sinn með mikið og fallegt hár.
Jón var eitt sinn með mikið og fallegt hár.

Einn dáðasti sjónvarpsmaður landsins Jón Ársæll Þórðarson hefur ekki mikið opnað sig um persónuleg mál þó hann sé frægur fyrir að fá viðmælendur sína til að vera einlæga og oft opinskáa í viðtölum sem hann tók.

Meðal annars í margverðlaunuðum þáttum sínum Sjálfstæðu fólki á Stöð 2. Sem hægt er að sjá á Stöð 2+.

En nú sýnir hann á sér nýja og einlæga hlið í æviminningabók sem hann nýlega gaf út sem heitir því skemmtilega nafni Ég átti að heita Bjólfur. Og þar kemur ýmislegt óvænt og skemmtilegt í ljós.

Og framkallar bókin bæði hlátur og tár. Vala Matt fór fyrir Ísland í dag og heimsótti Jón Ársæl og konu hans Steinunni Þórarinsdóttur í fallegt gamalt hús þeirra í Vesturbænum í síðustu viku.

Fór á sjó til að losna við hann af brjóstinu

„Ég segi söguna eins og ég man hana best,“ segir Jón og hlær en í bókinni kemur meðal annars fram að hann hafi verið kominn á fimmta ár þegar enn var verið að reyna venja hann af brjósti.

„Mamma varð að fara til sjós til að losna við mig af brjóstinu. Hún fór með pabba til Grænlands á saltfiskerí.“

Jón var fimm ára þegar hann var farinn að fikta við reykingar.

„Ég veit að ég var farinn að reykja töluvert þegar ég bjó á Eskifirði og ég flutti þaðan þegar ég var fimm ára og því hef ég ákveðna sönnun fyrir því.“

Hann segist vera í grunninn viðkvæmur maður.

„Ég segi oft, ef maður ætlar að fara hæla sjálfum sér í sjónvarpi, að ég er viðkvæmur já. Og er stoltur af því að viðurkenna það. Í mér býr örlítið viðkvæm sál og mér hefur fundist það hluti af því að vera til að geta kallað á litla viðkvæma drenginn í sér.“

Hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×