Ískaldur veruleiki, ekki skuggamyndir á vegg fræðimanna Arnar Þór Jónsson skrifar 11. nóvember 2024 10:21 Law is downstream from politics. Politics is downstream from culture.- Robert F. Kennedy jr. Í nýafstöðnum kosningum í Bandaríkjunum var mikið í húfi. Í raun má segja að þar hafi tveir menningarheimar tekist á og að úrslitin muni setja mark sitt á menningarumhverfi, stjórnmál og lagasetningu næstu ára. Í kosningabaráttunni tókst Repúblikanaflokkurinn (og Donald Trump) á við fleira en Demókrataflokkinn (og Kamölu Harris). Í reynd var andstæðingurinn allt stjórnkerfið, allir meginstraumsfjölmiðlarnir, allt stofnanaveldið, meira og minna allt fræðimannasamfélagið, allar alþjóðastofnanirnar, mestu auðmenn vestan hafs, kvikmyndaverin, lyfjaiðnaðurinn, hergagnaiðnaðurinn o.fl. Tap Demókrata þýðir í raun að nú hriktir í stjórnkerfum Vesturlanda sem m.a. hafa stefnt að innleiðingu ritskoðunar til að „verja“ almenning frá „falsfréttum“, ,,upplýsingaóreiðu“ og sönnum en óþægilegum staðreyndum. Hvaða breytinga má vænta í Bandaríkjunum á næstu mánuðum og misserum? Svar: Landamæragæsla verður tekin upp í auknum mæli, verðbólga mun lækka, efnahagurinn mun batna, skattfé verður aftur notað til að bæta hagsmuni almennra skattgreiðenda, glæpum mun fækka, valdaásælni alþjóðastofnana verður stöðvuð og valdið mun færast aftur til þjóðríkjanna, stríðinu í Úkraínu mun ljúka. Í stuttu máli er kosning DT rothögg fyrir spillt stjórnkerfi og til marks um að völdin munu færast aftur til fólksins. Hér má sjá að alþjóðlegir bjúrókratar eru nú þegar byrjaðir að hörfa (væntanlega til þess að reyna að bjarga eigin skinni). Fleiri skriffinnar (og stjórnmálamenn) munu fylgja í kjölfarið. Elon Musk mun væntanlega verða falið það verkefni að hagræða, endurskipuleggja og auka skilvirkni í rekstri bandaríska alríkisins. Í stöðu heilbrigðisráðherra verður væntanlega settur maður sem RÚV hefur kallað „rugludall“ og samsæriskenningamann. Hér er eitt dæmi (af mörgum) um það hvernig „samsæriskenningar“ RFK hafa orðið að viðurkenndum staðreyndum. Eins og Elon Musk og DT er RFK hættulegur þeim sem vilja halda óbreyttu ástandi (status quo) og þeim sem vilja viðhalda spillingunni sem grasserað hefur á bak við tjöldin, því RFK er einlægur í þeim ásetningi sínum að vilja þjóna almannahagsmunum. Fái hann til þess umboð nýs bandaríkjaforseta mun hann endurskipuleggja allar stofnanir sem hafa með lýðheilsu að gera, þar á meðal Lyfja- og matvælaeftirlitið (FDA), Farsóttarstofnunina (CDC), Landlæknisembættið (NIH) o.fl. RFK vill uppræta spillingu, upplýsa um hagsmunaárekstra, og ráðast að rótum þess alvarlega lýðheilsuvanda (offitu, sykursýki, hjartasjúkdóma o.fl.) sem plaga börn og fullorðna í USA. Við Íslendingar stöndum frammi fyrir stórum áskorunum í þessum efnum og þurfum að taka okkur verulega á ef heilbrigðiskerfið á ekki að bugast undan álagi. Niðurstöður kosninganna í BNA benda til að meirihluti Bandaríkjamanna sé búinn að fá nóg af ástandinu og vilji fá nýja vendi til að sópa út úr daunillum sölum ríkisstofnanna lýðveldisins. Hvað með Íslendinga? Hvenær kemur að því að þolinmæði íslensku þjóðarinnar brestur? Ætla kjósendur enn einu sinni að trúa því að gömlu flokkarnir meini það sem þeir segja í auglýsingaslagorðum? Þjóð sem kýs sömu flokkana aftur yfir sig vill ekki lægri skatta, lægri vexti, aðhald í ríkisrekstri og minna ríkisbákn. Við í Lýðræðisflokknum neitum að trúa því að Íslendingar vilji láta plata sig og arðræna. Við trúum því ekki að Íslendingar vilji ofurselja landið sitt og framtíð barnanna til erlends stofnanaveldis með sífellt auknu valdframsali úr landi. Við trúum því ekki að Íslendingar vilji kjósa flokka sem verja íslensku skattfé til vopnakaupa, heimta að hætt verði að nýskrá bensín- og díselbíla, flokka sem vilja leggja höft á innlenda iðnframleiðslu, hækka skatta, flækja regluverk, auka eftirlit og skerða persónufrelsi. Lýðræðisflokkurinn vill stuðla að framförum, atorku og frelsi. Öfugt við íslenska stjórnmálamenn hafa RFK og DT verið ófeimnir við að tala um djúpríkið og spillinguna sem þrífst í skjóli þess, þar sem hergagnaiðnaðurinn hefur beitt áhrifum sínum til að kynda undir árásar- og hernaðarhyggju BNA áratugum saman með þeim áhrifum að m.a.s. íslenskir ráðherrar hafa farið að tala eins og hörðustu stríðshaukar. Þessi árásargjarni talsmáti mun hverfa vegna breytts pólitísks landslags í Bandaríkjunum. Hér á landi vilja ekki margir horfast augu við að hér á Íslandi sé útbreidd spilling sem veldur margvíslegri óskilvirkni og ómældu fjárhagslegu tjóni. Sérfræðingar í háskólum neita að slíkt sé til og nota kunnuglega aðferð til þess: Að um samsæriskenningu sé að ræða, væntanlega með þeim rökum að Ísland sé ekki þjakað af djúpstæðri spillingu. Skilaboðin úr fílabeinsturnum fræðanna eru þau að við megum alls ekki trúa því að innan íslenska stjórnkerfisins sé annað kerfi, þar sem flokkseigendur og fjármagnseigendur sameinast um að verja sinn hag – á kostnað almennings. Meðan þetta má ekki ræða munu stjórnmálamenn áfram hygla hver öðrum, athugasemdalaust, og halda áfram að mynda ríkisstjórnir þvert á allar hugsjónir og svíkja þar með öll kosningaloforð. Íslenskir ráðherrar – og m.a.s. forsætisráðherra – mega ganga erlendum stofnunum á hönd og ganga erinda þeirra samhliða ráðherrastarfi, án þess að spurt sé um mögulega hagsmunaárekstra. Jafnvel þótt svo fari að hlutaðeigandi fái feitt starf hjá sömu stofnun eftir að pólitískum ferli þeirra lýkur, þá má ekki gera neinar athugasemdir við slíkt. Við þurfum að treysta okkur til að beina kastljósinu að samgróningum innlends valds: Milli flokka, milli hagsmunaaðila, milli stórfyrirtækja, en auk þess þurfum við að treysta okkur til að ræða hvort innlent vald sé komið í samkrull við erlent vald: ESB, WHO, SÞ o.fl. Hér er um alvarlegt viðfangsefni að ræða, sem varðar blákaldan veruleika Íslendinga, ekki ímyndaðan veruleika háskólamanna. Höfundur skipar 1. sæti á lista Lýðræðisflokksins í SV-kjördæmi. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Arnar Þór Jónsson Lýðræðisflokkurinn Skoðun: Alþingiskosningar 2024 Mest lesið Enginn á að vera einn í Reykjavík Ellen Calmon Skoðun Samfélag sem ýtir undir nærandi tengsl Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Með sniglaslím í andlitinu Karl Pétur Jónsson Skoðun Af hverju fjölgar öryrkjum? Svarið er ekki það sem þú heldur Sisa Berglind Kristjánsdóttir Skoðun Þúsund milljarða högg á ríkissjóð – svartasta sviðsmyndin á Nýjum Landspítala Sigurður Sigurðsson Skoðun Gini borgar ekki leiguna Birna Gunnlaugsdóttir Skoðun Aðalmeðferð í dómsmáli um netsölu áfengis eftir 2 daga Siv Friðleifsdóttir Skoðun Ég hlakka til Alexandra Briem Skoðun Hlutverk sem ég tek með auðmýkt og ábyrgð Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Kapphlaupið um sumarnámskeiðin Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Samfélag sem ýtir undir nærandi tengsl Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Enginn á að vera einn í Reykjavík Ellen Calmon skrifar Skoðun Ég heyri og hlusta: Um heyrnarskimun í grunnskólum Alma D. Möller skrifar Skoðun Hlutverk sem ég tek með auðmýkt og ábyrgð Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Ég hlakka til Alexandra Briem skrifar Skoðun Megum við fá bita, háttvirtur ráðherra? Katla Ósk Káradóttir skrifar Skoðun Barbabrella hægrisins í leikskólamálum Stefán Pálsson skrifar Skoðun Aðalmeðferð í dómsmáli um netsölu áfengis eftir 2 daga Siv Friðleifsdóttir skrifar Skoðun Aukin misskipting leysir ekki verðbólguvandann Finnbjörn Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Kjarnorkuvopnavæðing Norðurlanda Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Móðurmálið er gjöf sem endist ævinlangt Guðbjörg Magnúsdóttir,Renata Emilsson Pesková skrifar Skoðun Heyra heilbrigðisyfirvöld? Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Týndu börnin Telma Sigtryggsdóttir skrifar Skoðun Heyrnin tengir okkur Karen Ósk Gylfadóttir skrifar Skoðun Dýraskólinn: þegar stöðluð próf eru blekking jafnréttis Ásgeir Jónsson skrifar Skoðun Heyrnarskimun er ekki kostnaður – hún er fjárfesting í framtíð barna Hildur Heimisdóttir,Kristbjörg Gunnarsdóttir,Ólafur Hjálmarsson skrifar Skoðun Verndum börn gegn ofbeldi á netinu Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Gini borgar ekki leiguna Birna Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Kynjajafnrétti forsenda þróunar og framgangs Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Þegar landið logar Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Kapphlaupið um sumarnámskeiðin Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hvað á unga fólkið að kjósa? Daníel Þröstur Pálsson skrifar Skoðun Með sniglaslím í andlitinu Karl Pétur Jónsson skrifar Skoðun Þegar Bítlakynslóðin verður gömul Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Hagkvæmt húsnæði á hagkvæmum kjörum Jónas Yngvi Ásgrímsson skrifar Skoðun Úkraína - 24. febrúar 1956 og 2022 Erlingur Hansson skrifar Skoðun Aðgerðir gegn ofbeldi meðal barna Eygló Harðardóttir skrifar Skoðun Þar sem er reykur, þar er eldur Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Sterkara Austurland – saman, ekki sitt í hvoru lagi Erlendur Magnús Jóhannsson skrifar Skoðun Latína er list mæt Arnar Freyr Sigurðsson skrifar Sjá meira
Þúsund milljarða högg á ríkissjóð – svartasta sviðsmyndin á Nýjum Landspítala Sigurður Sigurðsson Skoðun
Skoðun Aukin misskipting leysir ekki verðbólguvandann Finnbjörn Hermannsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar
Skoðun Móðurmálið er gjöf sem endist ævinlangt Guðbjörg Magnúsdóttir,Renata Emilsson Pesková skrifar
Skoðun Heyrnarskimun er ekki kostnaður – hún er fjárfesting í framtíð barna Hildur Heimisdóttir,Kristbjörg Gunnarsdóttir,Ólafur Hjálmarsson skrifar
Þúsund milljarða högg á ríkissjóð – svartasta sviðsmyndin á Nýjum Landspítala Sigurður Sigurðsson Skoðun