Innlent

Helgi fer tíma­bundið í ráðu­neytið

Atli Ísleifsson skrifar
Helgi Grímsson.
Helgi Grímsson. Stjr

Helga Grímsson, sem gegnt hefur starfi sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur síðustu ár, mun tímabundið færa sig yfir í mennta- og barnamálaráðuneytið. 

Í tilkynningu á vef ráðuneytisins segir Helgi hefji störf í ráðuneytinu 1. janúar 2025 og muni halda utan um umbótaverkefni tengdu menntun á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi.

„Verkefninu er ætlað að auka jöfnuð í menntun milli einstakra skóla, sveitarfélaga og landsvæða og skapa ný tækifæri og aukin gæði í menntun með hagnýtingu gagna og markvissu samstarfi ríkis, sveitarfélaga og samtaka kennara,“ segir í tilkynningunni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×