Chelsea vann góðan sigur á Newcastle United, 2-1, á Stamford Bridge í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Nicolas Jackson kom Chelsea yfir á 18. mínútu eftir góðan undirbúning hjá Cole Palmer og Pedro Neto. Þetta var sjötta mark Jacksons í ensku úrvalsdeildinni í vetur.
Alexander Isak jafnaði fyrir Newcastle á 32. mínútu og staðan var 1-1 í hálfleik.
Strax í upphafi seinni hálfleiks kom Palmer Chelsea í 2-1 og þar við sat.
Chelsea er í 4. sæti deildarinnar með sautján stig en Newcastle er í því tólfta með tólf stig. Skjórarnir hafa ekki unnið í síðustu fimm leikjum sínum.